08.03.2010 23:02
Húsavík er á meðal tíu bestu hvalaskoðunarstaða
heims, að áliti blaðamanns Daily Telegraph. Á ruv.is segir að blaðið hafi birt í
ferðablaði sínu í dag grein eftir Victoriu Harwood blaðamann þar sem hún tekur
út 10 bestu hvalaskoðunarstaðina.
Þar er Húsavík á meðal staða eins og Lofoten í Noregi og Vancouver
eyju í Kanada. Sagt er að í Skjálfanda flóa sé hægt að sjá ýmsar hvalategundir
reglulega og þá fær Hvalasafnið góða dóma.
Þetta eru
ánægjulegar fréttir og greinina í Daily Telegraph má lesa hér í heild sinni.

6844. Skjálfandi ÞH 6 á Skjálfanda. © Hreiðar Olgeirsson.