|
Skipamyndir Hafþórs Hreiðarssonar |
|
Færslur: 2012 Febrúar29.02.2012 21:03Kristbjörg á toginuÞað er ekki seinna að vænna ef maður ætlar að setja eitthvað meira hér inn í febrúarmánuði. Enn er tími þökk sé hlaupári. Og þar sem fyrsta rækjulöndunin á árinu hér á Húsavík var í dag er upplagt að birta mynd af rækjubát á toginu. Þetta er Kristbjörg ÞH 44 og ef ég man rétt tók ég myndina í Bakka- eða Héraðsflóa. Þessi bátur hefur það rólegt þessi árin en sá bátur sem landaði hér í morgun var Jökull ÞH 259 og var rækjuafli hans 90 kör eftir því sem lönsunarmenn tjáðu mér. Og rækjunni var keyrt til Siglufjarðar til vinnslu.
Skrifað af HH 20.02.2012 21:02Ingunn SveinsdóttirSamkvæmt vef Gísla Reynissonar, aflafrettir.com, hefur Siglunes ehf. á Siglufirði tekið við útgerð Ingunnar Sveinsdóttur AK 91 og hefur báturinn fengið nafnið Mávur SI 76. Og Haraldur Böðvarsson & co ehf. sem átti Ingunni hefur keypt Kristján ÍS 110 í stað þessa báts og hefur hann fengið nafnið Ingunn Sveinsdóttir AK 91. 2795. Ingunn Sveinsdóttir AK 91 nú Mávur SI 76. © Hafþór Hreiðarsson 2012. 2783. Kristján ÍS 110 nú Ingunn Sveinsdóttir AK 91. © Alfons Finnsson 2011. Skrifað af HH 19.02.2012 12:35Frosti seldurÁ heimasíðu skipasölunnar Álasunds í Reykjanesbæ segir að frystitogarinn Frosti frá Grenivík hafi verið seldur til Kanada þar sem hann muni þjóna nýjum eigendum. Þessa mynd tók ég af Frosta á sínum tíma þegar hann kom úr breytingum hjá Slippstöðinni á Akureyri.
Skrifað af HH 17.02.2012 11:54Súlan að veiða í drottningunaBörkur Kjartans sendi mér þessa mynd sem hann rakst á fórum sínum og sýnir hún Súluna að síldveiðum á Breiðasundi. Aldrei of margar myndir af Súlunni. Á bak við hana aftanverða sést grilla í drottninguna sem svo var kölluð. Margrét EA var hennnar opinbera nafn og þarna er hún að bíða eftir síld úr nótinni hjá Súlunni. 1030. Súlan EA 300. © Börkur Kjartansson. Skrifað af HH 15.02.2012 21:55SúlanÞorgrímur sendi mér þessa mynd af Súlunni þar sem hún er að dæla úr nótinni. Veit ekki hvaða ár hún var tekin en það skiptir svo sem engu. Stemmingsmynd engu að síður. 1060. Súlan EA 300. © Úr safni Þ.A Skrifað af HH 13.02.2012 18:50ValgerðurSamkvæmt mínum heimildum hefur útgerð Markúsar ÍS 177 keypt stálbátinn Valgerði BA 45. Þessa mynd hér að neðan tók meistari Alfons árið 2007 en upphaflega hét báturinn Friðrik Bergmann SH 240 og síðar Bára SH 27. Smíðaður hjá Ósey 1999 en eins og flestir vita var skrokkurinn fluttur inn frá Póllandi. Og svolítið meira.......heyrði að bátur sem var seldur á sínum tíma hafi verið seldur aftur. Meira síðar 2340. Valgerður BA 45 ex Bára SH 27. © Alfons 2007. Skrifað af HH 12.02.2012 12:35Löndunarbið í ÞorlákshöfnÞar sem loðnuvertíðin stendur nú yfir er ekki úr vegi að birta þessa mynd úr safni Þorgríms. Hún er tekin í Þorlákshöfn og sýnir stemminguna á loðnuvertíðum hér áður fyrr.Þarna er einn, spurning hver hann er, undir löndunargræjunum og tveir bíða löndunar. Myndin er nú sennilega tekin snemma dags þar sem fáir bátar eru í höfn, allir á sjó. Í Þorlákshöfn á loðnuvertíð. © Úr safni Þ.A Skrifað af HH 12.02.2012 12:23Börkur myndaði nafna sinnBörkur frá Hraunkoti tók þessa mynd af nafna sínum frá Neskaupsstað fyrir helgina. Þarna er nýjasta uppsjávarskip íslendinga á loðnumiðunum en ljósmyndarinn starfar sem vélstjóri á Lundey NS 14. 2827. Börkur NK 122 ex Torbas. © Börkur Kjartansson 2012. 2827. Börkur NK 122 ex Torbas. © Börkur Kjartansson 2012. Skrifað af HH 11.02.2012 20:31Eiður ÓF seldur til ÍsafjarðarÚtgerðarfyrirtækið Manni ehf. á Akureyri hefur set bát sinn, Eið ÓF 13, til Ísafjarðar. Kaupandinn er Gunnar Torfason sem hyggst gera hann út á innfjarðarrækju og dragnót. Jón Grunnvíkingur tók þessa mynd af Eið á Ísafirði í morgun.
1611. Eiður ÓF 13 ex Eiður EA 13. © Jón Grunnvíkingur 2012.
Skrifað af HH 11.02.2012 12:34Loftur BaldvinssonHér Lemur ein úr safni Þorgríms og sýnir hún Loft Baldvinsson EA 24 (að mig minnir) þiggja úr nótinu hjá öðru skipi. Og spurning dagsins er sú hvaða skip er þarna í hlutverki gefandans ? 1069. Loftur Baldvinsson EA. © Úr safni Þ.A Skrifað af HH 10.02.2012 22:03Myndband frá Sail HúsavíkVar að fikta í Maccanum í kvöld og þetta er útkoman. Reyndar einhver vetrartrailer en ég valdi nú samt klippur frá Sail Húsavík.
Skrifað af HH 09.02.2012 19:54AkureyriTveir flottir sagði Steini Pjé um þessa mynd sem hann sendi mér. Plastarinn ekki talinn með enda seint sagður flottur. Falleg mynd hjá Steina. Við Torfunef. © Stein Pjé 2012. Skrifað af HH 08.02.2012 17:06ActivÞað er alltaf hægt að ganga í sarpinn þegar lítið er að mynda og hér kemur ein frá fyrra ári. Seglskipið Activ. © Hafþór Hreiðarsson 2011. Skrifað af HH
Flettingar í dag: 208 Gestir í dag: 52 Flettingar í gær: 1448 Gestir í gær: 358 Samtals flettingar: 2993083 Samtals gestir: 744941 Tölur uppfærðar: 17.5.2012 05:03:57 |
Vafraðu umEldra efni
clockhere Tenglar
Um mig Nafn: Hafþór HreiðarssonFarsími: 8956744Tölvupóstfang: korri@internet.isHeimilisfang: Sólbrekka 29Staðsetning: HúsavíkHeimasími: 4642030Önnur vefsíða: www.640.is |