07.09.2010 23:11
Jæja hér kemur mynd sem var tekin um helgina og spurt er hvert er fleyið ? Svarið er línuskipið Argenova XXI sem áður hét Vestmannaey. Þannig að Hjalti var fyrstur með svarið. Sigurgeir Pétursson frændi minn sem er skiptsjóri á verksmiðjutogaranum Tai An sendi mér myndina sem tekin var um helgina eins og áður segir. Þá voru skipin inn á firði syðst í Argentínu í arfavitlausuveðri og blindbyl eins og Geiri orðaði það.