|
Skipamyndir Hafþórs Hreiðarssonar |
|
FréttasíðaVið sjávarsíðuna 31.12.2008Ásgeir RE 60Á eftir Ásbirni í Ísbjarnarstafrófinu kemur Ásgeir sem var RE 60. Þeir voru smíðaðir í Flekkufirði í Noregi, Ásgeir 1977 og Ásbjörn 1978. Ásgeir og Ásbjörn voru því systurskip og mældust 442 brl. að stærð. Búnir 2100 hestafla Wichmannaðalvélum. Þeir voru smíðaðir fyrir Ísbjörninn hf. en í viðskiptum árið 1986 voru þeir komnir í flota Granda hf. Þegar Ögurvík hf. var með frystitogarann Vigra RE 71 í smíðum, í árslok 1991, höfðu Ögurvík hf. og Grandi skipaskipti. Ásgeir fór út fyrir hinn nýja Vigra en Grandi fékk skuttogarann Ögra RE 72 í staðinn.
30.12.2008Ásbjörn á leið til Þýskalands með fullfermi.Ísfisktogarinn Ásbjörn RE er nú á leið til Þýskalands með fullfermi af fiski, um 150 tonn, sem fyrirhugað er að selja á fiskmarkaðnum í Bremerhaven 5. janúar nk. Að sögn skipstjórans, Ólafs Einarssonar, var mikið haft fyrir aflanum enda var nánast kolvitlaust veður megnið af veiðiferðinni og á aðfangadag var brugðið á það ráð að leita vars undir Hólsbergi í nágrenni Keflavíkur og þar varði áhöfnin aðfangadagskvöldinu. ,,Það er óhætt að segja að veðrið hafi verið slæmt. Við vorum tíu daga í veiðiferðinni og í þrjá daga var ekkert hægt að vera að veiðum. Hina dagana var þokkalegt kropp," sagði Ólafur er tíðindamaður heimasíðu HB Granda náði tali af honum. Ásbjörn RE var þá suður af Reykjanesi en skipið lét úr höfn í Reykjavík í morgun eftir að hafa tekið olíu og vistir. Að sögn Ólafs var hann að veiðum í Skerjadýpinu eða á heimaslóðum ísfisktogara HB Granda og uppistaða aflans var góður gullkarfi en einnig voru í lestinni um 20 tonn af ufsa.
30.12.2008Um borð í Jóni Baldvinssyni.Hér birtist aftur mynd Hauks Hallvarðssonar sem hann tók um borð í síðutogaranum Jóni Baldvinssyni RE 208. Nú hafa borist upplýsingar um mennina á myndinni. Sá sem spilar á munnhörpuna er Torfi Baldursson. Hann var 15 ára þegar myndin var tekin og hálfdrættingur um borð. Sá með gogginn er Ólafur Egilsson og við hlið hans Jón Ellert Guðjónsson sem þarna er 16 ára en. Jón Ellert sem nú er skipstjóri á Húna II sá myndina og þekktiu hana og þá sem á henni eru. Sá sem snýr baki í myndasmiðinn mun vera Sigurður Sigurðsson prests í Holti og svo er það Stefán en ekki er vitað um föðurnafn hans. Myndin er tekin sumarið 1953. Þorsteinn Pétursson á Akureyri sendi mér þesar upplýsingar og þakka ég honum fyrir þær.
29.12.2008Þórsnes SU 308Hér kemur mynd af Þórsnesi SU 308 frá Breiðdalsvík. Báturinn var 69 brl. að stærð, smíðaður í Danmörku 1960 fyrir Þórsnes hf. í Stykkishólmi. Upphaflega voru tvær 240 hestafla G.M aðalvélar í bátnum en 1970 var skipt um og 375 hestafla Cummins sett í staðinn. Í janúar 1983 fær ba´turinn einkennisstafina SH 308 og í september sama ár er hann seldur austur á Breiðdalsvík. Kaupendur voru Hrafnkell Gunnarsson og Ingþór Indriðason. Báturinn hét áfram Þórsnes og varð SU 308. Í desember ári síðar kaupir Selnes hf. á Breiðdalsvík bátinn. Í byrjun septembermánaðar 1986 kaupir Aðalvör hf. í Hafnarfirði bátinn og hann verður Þórsnes HF 101. Síðar varð hann Helguvík ÁR 213 og spurning hvort það hafi verið hans síðasta nafn.
29.12.2008Atlantic MargaretHér kemur mynd af einum af þessum Smugutogurum sem komu hér um árið. Atlantic Margaret og spurning hvort þetta sé togarinn sem Hafliði er að tala um í álitum við myndirnar af Kull og Pistrik.
29.12.2008Kull og PistrikHér koma myndir af skuttogurunum Kull og Pistrik sem komust í fréttirnar hér á landi í septemberlok 1994. Þá lönduðu þeir saltfiski til áframhaldandi vinnslu á Húsavík. Þetta voru 140 tonn af saltfiski sem fengust í Smugunni en skipin voru skráð á eyjunni Mön. Þau sigldu samt undir eistneskum fána og sagt í eigu fyrirtækisins Dagomar þar í landi. Skipin höfðu nýlega verið keypt frá Kanada þegar þarna var komið við sögu. Eftir því sem Hafliði togarasérfærðingur Óskarsson sagði mér eitt sinn voru þessi tvö skip þess valdandi að Smugan fylltist af skipum.
28.12.2008Skagfirðingar á toginuHér koma myndir af skuttogurunu Hegranesi og Drangey á toginu. Hegranesið var smíðað í Póllandi 1975 og mældist 453 brl. að stærð. Það var búið 1500 hestafla Crepellle aðalvél. Útgerðarfélag Skagfirðinga hf. keypti það til landsins árið 1977 og 1983 var það lengt. Við það mældist skipið 498 brl. að lengd. Þá var sett í skipið 1950 hestafla Crepelle aðalvél. Hegranesið varðs vo að lokum í eigu FISK. eftir einhverjar sameiningar við Skagafjörð. Endalok þess urðu á þessu ári þegar það var rifið við Krossanes í Eyjafirði. Skuttogarinn Drangey SK 1 var smíðaður á Spáni 1974 fyrir Hraðfrystihús Keflavíkur hf. og mældist 451 brl. að stærð. 1700 hestafla Bazan aðalvél var í Aðalvíkinni KE 95 eins og skipið hét í upphafi og fram til ársins 1988. Þá var Aðalvíkin seld norður á Sauðárkrók og fékk Drangeyjarnafnið.Ef ég man sögu skipsins rétt var Drangey selt til Tanga hf. á Vopnafirði þar sem það fékk nafnið Eyvindur Vopni NS 70. Þorbjörn hf. í Grindavík keypti síðan Eyvind Vopna sem fékk nafnið Óseyri ÍS og síðan Skúmur GK. Þá kaupir Ingimundur hf. í Reykjavík skipið sem verður Helga II RE 373. Næst varð hann Jón Vídalín ÁR og því næst Vídalín SF 80. Þar með lauk veru togarans á íslenskri skipaskrá held ég.
28.12.2008FragtariÞað er öðru hverju verið að spyrja mig hvort ég eigi ekki eitthvað af fragtaramyndum og hér kemur ein slík. Tekin við Miðjarahafið í haust. Ég spyr eins og maðurinn, kannast einhver við hann ?
27.12.2008Tvær fyrir TryggvaHér koma tvær myndir fyrir Tryggva Sig. Drullusokk nr. 1. Þær voru teknar í dag þegar nokkrir félaga í Náttfara fóru í hjólaferð austur á Kópasker.
25.12.2008Náttfari RE 59Hér kemur mynd af Náttfara RE 59 sem upphaflega hét Halkion VE 105. Síðar varð hann Álsey VE 502, þá Náttfari og að lokum Baldur Karlsson ÁR 6.
25.12.2008Gleðileg jólÓska öllum þeim sem heimsækja síðuna og þeim sem hafa lagt henni til myndefni gleðilegra jóla. Hafþór Hreiðarsson 25.12.2008Grundar GeiriHér kemur skemmtileg mynd sem frændi minn Sigurgeir Pétursson sendi mér. Hún er tekin 1975 af vélbátnum Kvikk ÞH 112 sem Hólmgeir Árnason sem kenndur var við Grund í Flatey átti. Þarna er Grundar Geiri ístafni á leið frá Flatey upp á dal (Flateyjardal). Með honum í för eru þrír ungir drengir, dóttursynirnir Sigurgeir Pétursson við stýrið og við hlið hans Ævar Austfjörð. Í miðjunni situr sonarsonurinn Stefán Guðmundsson. 24.12.2008Gideon og HalkionHér koma myndir af togskipunum Halkion og Gideon frá Vestmannaeyjum sem smíðuð voru fyrir Samtog hf. í Vestmannaeyjum. Það var árið 1984 og smíðalandið Pólland, þeir bræður voru 222 brl. að stærð búnir 840 hestafla Sulzer aðalvélum. Um mitt ár 1987 var skráður eigandi Höfn hf. í Vestmannaeyjum sem var að 99% í eigu Ísfélags Vestmannaeyja. Þar sem jólahátíðin er að ganga í garð verður þessum skipum gerð betur skil síðar.
22.12.2008Jón BergkvistssonUm daginn birti ég mynd mína af Bergkvist SU 409 og gat þess að eigandinn geymdi hann innan dyra á Fáskrúðsfirði. Jón Páll sendi mér síðan í framhaldinu mynd af eigandanum, sem heitir Jón Bergkvistsson, þar sem hann stendur við bátinn í skemmu á Fáskrúðsfirði. Jón Bergkvistsson við Bergkvist SU 409. © Jón Páll Ásgeirsson 2006. 22.12.2008Þrjár eyjur
21.12.2008Skúli fógetiHér kemur mynd úr safni Vigfúsar Markússonar af Skúla fógeta ÁR 185. Skúli fógeti hét Skúli fógeti alla sína tíð að undanskildum tæpum tveim árum. Það var frá því í desember 1954 til sepembermánaðar 1956. Þá hét hann Hafsteinn ÁR 12. Skúli fógeti VE 185 var smíðaður í Danmörku 1938 og mældist 22 brl. að stærð. Um borð var 70 hestafla Hundested aðaðlvél. Eigendur hans frá því október 1938 voru Ólafur Eyjólfsson, Magnús Valtýsson og Vilhjálmur Guðmundsson. Upphaflegu Hundestedvélinni var skipt út fyrir nýja 90 hestafla vél sömu gerðar árið 1949. Þeir seldu hann 1954 eins og greint er frá hér í upphafi. Kaupandinn var Stokkseyrarhreppur en 1956 kaupa Sigurjón Karl Ólafsson og Einar Ólafsson bátinn aftur til Vestmannaeyja. Hann fékk sitt gamla nafn aftur en 1960 kaupir Sigurður Ólafsson í Vestmannaeyjum bátinn. 1963 var sett í bátinn 200 hestafla Volvo Penta aðalvél. 1969 kaupa Ögmundur Sigurðsson og Sigurður Ögmundsson bátinn en 1973 eða 1974 er hann aftur seldur til Stokkseyrar. Kaupendur voru Hafsteinn Jónsson og Sigurvin Ólafsson og er báturinnendurmældur sama ár. Þá mældist hann 23 brl. að stærð. Í maímánuði 1975 kaupir Ragnar Jónsson á Eyrarbakka Skúla fógeta og verður hann þá ÁR 185 eins og hann er á myndinni. Ekki varð sú útgerð löng því báturinn sökk og ónýttist í Eyrarbakkahöfn í 3. nóvember sama ár. Hann var tekinn af skrá 4. desember 1975. Heimild Íslensk skip.
21.12.2008Þórsnes IIÞórsnes II er í fréttum á 640.is í dag.
21.12.2008Hver er báturinn ?Tryggvi vil fá svar við þessari spurningu hér að neðan en sannleikurinn er sá að ég veit ekki fyrir víst hver báturinn er. Ég held þó að það sé rétt hjá þeim sem hafa giskað á Gunnhildi GK. Það er allavega víst að GK er á bátnum. 19.12.2008Jón Baldvinsson RE 208Menn hafa veriðað sýna myndir frá strandi Jóns Baldvinssonar RE 208 við Reykjanes á nokkrum síðum að undanförnu. Hér kemur mynd af togaranum á floti. Nánar tiltekið við komu hans til heimahafnar í fyrsta skipti, hinn 25. júní 1951. Myndin er úr safni Gunnars Kristjánssonar. Jón Baldvinsson RE var smíðaður hjá Hall Russel í Aberdeen í Skotlandi og var tæp 184 fet á lengd. Hann hafði vinnuheitið "Dröfn" á smíðatímanum en þá var eigandi Ríkissjóður Íslands. Við kaup B.Ú.R á togaranum var honum gefið nafn Jóns Baldvinssonar fyrrum alþingismanns og forseta ASÍ. Neðri myndina, sem tekin er um borð í Jóni Baldvinssyni RE 208, tók Haukur Hallvarðsson. Gaman væri ef einhver þekkti unga manninn sem spilar á munnhörpu í forgrunni myndarinnar. Það eru sennilega ekki margar ljósmyndir til sem teknar erum um borð í Jóni Baldvinssyni RE 208 því ekki varð útgerðarsaga hans löng. Hann strandaði við Reykjanes 31. mars 1955 og var áhöfninni, fjörutíu og tveim mönnum, bjargað af björgunarsveit Slysavarnarfélagsins í Grindavík.
19.12.2008Rífa rífa rífa og rífa meira í dag en í gærMenn virðast nokkuð afkastamikir í niðurrifi báta þessa dagana. Í gær var Hilmi tortímt eins og kom fram hér á síðunni og í dag er það Jón Trausti sem fær á baukinn. Bjarni Ásmundar sendi mér þessar myndir sem hann tók rétt fyrir kl. tvö í dag og sýna þær niðurrif Jóns Trausta. Þetta var nú nokkuð fyrirséð enda búið að láta bátinn drabbast niður í mörg ár.
Flettingar í dag: 886 Gestir í dag: 277 Flettingar í gær: 1938 Gestir í gær: 469 Samtals flettingar: 1573863 Samtals gestir: 402390 Tölur uppfærðar: 22.3.2010 15:17:21 |
Vafraðu umEldra efni
clockhere Tenglar
Um mig Nafn: Hafþór HreiðarssonFarsími: 8956744Tölvupóstfang: korri@simnet.isHeimilisfang: Sólbrekka 29Staðsetning: HúsavíkHeimasími: 4642030Önnur vefsíða: www.640.is |