|
Skipamyndir Hafþórs Hreiðarssonar |
|
FréttasíðaVið sjávarsíðuna 31.10.2008Krossvík AK 300Hér kemur mynd af skuttogaranum Krossvík AK 300 sem var í eigu samnefnds hlutafélags á Akranesi. Krossvík var smíðuð í Noregi 1972 og mældist 296 brl. að stærð, búin 1500 hestafla Wichmann aðalvél. Hlutafélagið Krossvík hf. var stofnað af HB & Co, Akraneskaupstað, Síldar- og fiskimjölsverksmiðju Akraness, Þórði Óskarssyni og Haferninum. Ekki er ég nú alveg með það á hreinu hvernig saga Krossvíkur hf. var en alla vegna var skuttogarinn Krossvík AK notaður sem fysrta greiðsla þegar HB keypti frystitogarann Polarborg II frá Færeyjum sem síðar fékk nafnið Höfrungur III AK 250. Heimild: haraldarhus.is
29.10.2008Ágúst og Ágúst GuðmundssynirHér fáum við að líta augum tvo báta sem eitt sinn voru í eigu Halkotsbræðra á Vatnsleysuströnd. Þetta er Ágúst Guðmundsson GK 95, einn fjögurra báta sem báru þetta nafn, og Ágúst Guðmundsson II GK 94. Ágústi Guðmundssyni þessum hefur verið gerð góð skil hér áður og eins hefur hinn komið við sögu á síðunni.
28.10.2008Þorsteinn GK 16Um daginn birti ég mynd af Þorsteini GK 16 sem endaði undir Krísuvíkurbjargi þann 10 mars 1997. Um mánuði síðar var kominn nýr Þorsteinn í stað hans og tók ég þessa mynd af honum í Grindavík. Eins og sést þá er íslenski fáninn við hún í afturmastrinu en áhöfnin á fullu við að græja bátinn enda sjálfsagt búnir að missa nógu mikið af vertíðinni á þeimtíma sem liðinn var frá því sá gamli strandaði.
27.10.2008Mótor og seglHér kemur mynd sem ég tók sl. fimmtudag eða daginn fyrir bræluna sem verið hefur yfir helgina. Þá var Sæborgin að koma að landi eftir róður á Skjálfanda og lítill árabátur undir seglum mætti henni í hafnarkjaftinum. 1475.Sæborg ÞH 55 ex Eyvindur KE. © Hafþór Hreiðarsson. 26.10.2008Tveir fimm níuHér koma tvær myndir af sama bátnum sem hét Súlan EA 300 í upphafi. Þessar myndir gætu verið teknar með c.a. 20 ára millibili en þá fyrri tók Vigfús Markússon en Tryggvi Sigurðsson þá neðri.
25.10.2008TraustiNú mun Trausti ÍS 111 vera kominn til Foarnes í Danaveldi þar sem hann verður brytjaður í spað. Trausti, sem er einn austur þýsku stálbátanna, var smíðaður 1961 fyrir Hraðfrystihús Stöðfirðinga. Hann mældist í upphafi 101 brl. en var endurmældur síðar og mælist í dag 93 brl. að stærð. Kambaröst SU 200 var það nafn sem stöðfirðingar völdu bátnum sem þeir gerðu út þangað til að hann var seldur í lok nóvember 1965. Kaupandinn var Norðurvör hf. í Þorlákshöfn og nefndu þeir bátinn Bjarna Jónsson ÁR 28. Í árslok 1967 kaupir Eyri hf. í Sandgerði bátinn sem verður við það Álaborg GK 175. Í lok mars 1971 kaupir Fiskiver hf. á eyrarbakka bátinn sem fær ÁR 25 á kinnunginn. Upphaflega var 400 hestafla MWM aðalvél í bátnum en árið 1981 var sett í hennar stað 520 hestafla Caterpillar. Ný Álaborg ÁR leysti þessa af hólmi í ársbyrjun 1997 og fékk sú gamla þá nafnið Trausti ÁR 80. Eigandinn var Spillir ehf. í Reykjavík sem síðar skráði bátinn fyrir vestan, í Súðavík. Uppl. eru úr Íslensk skip ásamt því sem fannst í kolli síðuritara.
25.10.2008Smábátum fækkarSmábátarnir streyma úr landi líkt og þeir stærri og hafði ég samband við Andrés Kolbeinsson hjá Húsanausti og forvitnaðist örlítið. Andés sagði að frá því september í fyrra hafi þeir selt átján báta úr landi, þar eru tvær nýsmíðar frá Seiglu. Sautján þeirra fóru til Noregs en einn til Grænlands. Fyrirtækið stendur að vefnum www.findvessel.com þar sem hægt er að kaupa og selja báta. Ef Andrés og félagar hafa selt sextán notaða smábáta úr landi hvað skyldu hinar skipsölurnar hafa selt ? Hvað ætli smábátum hafi fækkað mikið frá því síðasta skipaalmanak kom út ? Það verður fróðlegt að sjá. 2485.Björgmundur ÍS 49 ex Auður Þórunn ÞH 344. © Hafþór Hreiðarsson. 25.10.2008Mikð tjón á hafnarmannvirkjumMikið tjón varð við Húsavíkurhöfn í gærkveldi og nótt þegar há sjávarstaða ásamt miklu brimi olli miklum fyllum sem skullu á hafnarmannvirkjum. Hægt er að lesa nánar um þetta á www.640.is Þá er komið inn albúm með myndum sem teknar voru í dag.
24.10.2008Ólafur HFÞessi ku vera seldur. Hafa menn einhverja vitneskju um hver kaupandinn er ? Vonandi er han hér innanlands.
23.10.2008Víðir II á toginuHér er Víðir II á toginu í den. Að mig minnir hefur saga þessa báts komið fram hér áður og verður ekki endurtekin nú. Að vísu hefur hann skipt um eigendur nýlega en útgerðamaður Portlands VE keypti hann í sumar.
23.10.2008Keflavíkurhöfn árið 1966Þessa mynd fékk ég senda í morgun en hún er tekin yfir höfnina í Keflavík í apríl árið 1966. Það mun hafa verið hermaður í herstöðinni á Miðnesheiðinn sem hana tók. Þarna má sjá hve blómleg útgerð var í Keflavík á árum áður og þar á ég við fjölda báta. Veit ekkert hvort menn voru að reka þetta yfir eða undir núllinu, sjálfsagt misjafnt eins og gengur en allavega sköffuðu þeir sér og sínum vinnu.
22.10.2008Libas hinn norskiHér kemur mynd af einum stórum og glæsilegum. Þetta er hinn norski Libas, flaggskip norðmanna, sem smíðaður var í Fitjar Mek Veksted í Noregi árið 2004. Ég er nú ekk með miklar upplýsingar um hann en hann er tæpra 100 metra langur með ríflega 8000 hestafla aðaðlvél. Myndirnar fékk ég á heimasíðu áhafnarinnar á Margréti EA en tengill á hana er hér til hægri á síðunni. Fleiri myndir er hægt að skoða á síðunni hjá þeim en þær voru teknar á dögunum þegar Leibbi Manna og hans menn lönduðu í Noregi. Kann ég þeim Margrétarmönnum bestu þakkir fyrir afnotin og leyfið til að nota myndir frá þeim.
22.10.2008Helga RE 49Helga RE 49 er þekkt nafn í íslenska flotanum og nokkur skip hafa borið það. Hér er mynd af þeirri stærstu, 1066 brl. frystitogara sem smíðaður var í Slipen Mek. Verksted A/S í Sandnesöjen í Noregi. Það var árið 1996 sem skipið hljóp af stokkunum, nánar tiltekið þann 4. maí en skrifað var undir smíðasamninginn þann 20 febrúar 1995. Helga, sem norskum skipasmiðum þótti eitt best búna fiskiskip veraldar, kom til landsins í byrjun septembermánaðar 1996 og fór fljótlega upp úr því til rækjuveiða. Helga RE 49 var gerð út til rækjuveiða af Ingimundi hf. í rúm þrjú ár en haustið 1999 var hún seld til Grænlands. Kaupandinn, grænlenska útgerðarfyrirtækið PolarSeafood Trawl, fékk það afhent í Reykjavíkurhöfn um mánaðarmótin október-nóvember. Helga RE var, og er sennilega enn, með 4590 hestafla Wartsila aðalvél en mesta lengd skipsins er 60,4 metrar. Breiddin er 13 metrar og eins og áður segir er það 1066 brl að stærð en BT mælingin segir um 2000 tonn.
21.10.2008Sigurþór GK 43Hér kemur mynd úr safni Vigfúsar Markússonar af Sigurþór GK 43 við bryggju. Sigurþór hét upphaflega Gylfi EA 628 og var í eigu Valtýrs Þorsteinssonar í rauðuvík við Eyjafjörð. Gylfi var smíðaður á Akureyri 1939 úr eik og beyki. Upphaflega var í honum 100hestafla Alpha aðalvél en 1944 var skipt um vél og kom 240 hestafla GM í stað Alphavélarinnar. Í árslok 1965 er báturinn seldur suður til Reykjavíkur, Guðmundur Ragnarsson er kaupandinn og nefnir hann bátinn Fróða RE 44. Í júnímánuði 1971 er báturinn aftur kominn norður í Eyjafjörð. Nú Þingeyjarsýslumegin, nánar tiltekið á grenivík. Þangað keyptu þeir Svavar og Guðlaugur Gunnþórssynir bátinn og nefndu hann Eyfirðing ÞH 39. Í ársbyrjun 1974 er hann aftur seldur suður þar sem hann fær Fróðananfið að nýju en verður RE 111. Kaupandinn Sigurjón Jónsson á Seltjarnarnesi. Í marsmánuði 1975 skiptir báturinn aftur um eigendur þegar Steinþór Þorleifsson í Grindavík kaupir hann. Hann fær nafnið Sigurþór GK 43 sem hann ber á myndinni hér að neðan. Sigurþór GK 43 var talinn ónýtur og tekinn af skrá síðla októbermánaðar 1983. Heimildir fékk ég að þessu sinni í bókinni Íslensk skip 1. bindi.
21.10.2008Hver er báturinn ?Hver er hann þessi ? 20.10.2008FjölnirFjölnir SU 57 landaði hér á Húsavík í dag, fyrstur Vísisbáta á þessu kvótaári. Afli hans var um 70 tonn.
20.10.2008VardöjentaBátasmiðjan Trefjar í Hafnarfirði afgreiddi nú á dögunum nýjan Cleopatra bát til Vardø í Finnmerkurfylki í Noregi. Kaupandinn er Kent Are Esbensen sem jafnframt verður skipstjóri á bátnum. Báturinn hefur hlotið nafnið Vardøjenta. Hann mælist 15brúttótonn og er af gerðinni Cleopatra 36 sem er sérstök útgáfa af Cleopatra 38. Aðalvél bátsins er af gerðinni Cummins QSM11 610hp tengd ZF V-gír. Báturinn er útbúinn fullkomnum siglingatækjum af gerðinni Furuno. Hann er með vökvadrifinni hliðarskrúfu sem tengd er sjálfstýringu hans. Báturinn er útbúinn til línu og netaveiða auk þess aðstunda veiðar á kóngakrabba hluta úr ári. Línubúnaður er fráBeiti og netabúnaður frá Rapp. Öryggisbúnaður bátsins kemur frá Viking-björgunarbúnaði. Rými er fyrir 11stk 660 lítra kör í lest. Í bátnum er upphituð stakkageymsla og sturtuklefi. Borðsalur er í brúnni auk stóla fyrir skipstjóra og háseta. Svefnpláss er fyrir fjóra í lúkar auk eldunaraðstöðu með eldavél, örbylgjuofn og ísskáp. Reiknað er með að báturinn hefji veiðar nú á næstu dögum.
20.10.2008Eldur í togara.Á www.mbl.is segir frá því að í gærkveldi hafi komið upp eldur í frystitogara frá Nýfundnalandi sem fyrirtækið Ocean Choice International á og gerir út. Það fyrirtæki er að þriðjungshluta til í eigu Vísis hf. í Grindavík. Togari þessi, Newfoundland Lynx, var smíðaður í Frederikshavn í Danmörku árið 2004. Það var Örskov Christensen Staalskibsværft A/S sem smíðaði skipið
19.10.2008Nýir eigendur að Þorsteini GíslasyniSamkvæmt heimildum mínum eru komnir nýir eigendur að vélbátnum Þorsteini Gíslasyni frá Grindavík. Þeir eru hinir sömu og eiga Kristbjörgu HF177 og Margréti HF 20 (samkvæmt vef Fiskistofu). Ég bara man ekki hvort ég hef fjallað um Þorstein Gíslason hér áður en til upprifjunar hét hann upphaflega Árni Geir KE 31 frá Keflavík. Hann var smíðaður 1959 í Þýskalandi og fyrsti eigandi hans var Guðfinnur sf. í Keflavík. 1965 kaupir Norðurvör sf. í Keflavík bátinn sem heldur nafni sínu og númerum. Aftur er hann seldur árið1970 og nafn og númer halda sér. Að þessu sinni voru það þeir Gísli J. Halldórsson í Keflavík og Kjartan Ásgeirsson í Garðinum kaupa hann. Þeir selja hann aftur árið 1975 og þá fær hann nafnið sem hann ber í dag, Þorsteinn Gíslason GK 2. kaupendur voru Jóhannes Jónsson og Halldór Þorláksson í Grindavík ásamt Bjarna Helgasyni í Reykjavík. Í ársbyrjun 1977 eru eigendur Jóhannes, Guðjón og Magnús Þorlákssynir í Grindavík en árið 1982 er það Selháls sf. sem er skráður eigandi. Uppl. Íslensk skip Skráður eigandi í dag er Selháls ehf.
Flettingar í dag: 157 Gestir í dag: 42 Flettingar í gær: 1938 Gestir í gær: 469 Samtals flettingar: 1573134 Samtals gestir: 402155 Tölur uppfærðar: 22.3.2010 03:44:03 |
Vafraðu umEldra efni
clockhere Tenglar
Um mig Nafn: Hafþór HreiðarssonFarsími: 8956744Tölvupóstfang: korri@simnet.isHeimilisfang: Sólbrekka 29Staðsetning: HúsavíkHeimasími: 4642030Önnur vefsíða: www.640.is |