|
Skipamyndir Hafþórs Hreiðarssonar |
|
FréttasíðaVið sjávarsíðuna 31.3.2008Þengill ÞH 114Þá er hægt að halda áfram því sem frá var horfið, þ.e.a.s bátabloggast. Ég hef verið að fá sendar myndir frá ýmsum aðilum að undanförnu, bæði gamlar og nýjar og þakka ég hér með fyrir þær. Ég þigg með þökkum ef fólk vill lána mér myndir til birtingar en helst þarf það að hafa birtingarréttinn á hreinu. Hér kemur mynd sem þau útgerðarhjón, Úlla og Karl Óskar Geirsson á Sæborgu ÞH 55 sendu mér. Á henni má líta Þengil ÞH 114 við bryggju á Húsavíkog Bjarma ÞH 277 utan á honum. Þengill hét upphaflega Steinunn SH og var smíðaður á Akureyri 1960 fyrir Halldór Jónsson í Ólafsvík. 1968 kaupur Skinney hf. á Hornafirði bátinn og heldur nafninu en einkennisstafirnir verða SF 10. 1972 var umdæmisstöfunum breytt í SF 101 og í desember sama ár kaupa bátinn þeir Skúli Magnússon í Hafnarfirði og Sigurður R. Steingrímsson og Eiríkur Á. Þorleifsson í Grindavík. Nefna þeir bátinn Pétursey GK 184 sem hann og heitir þangað til þeir bræður Guðjón og Kristján Björnssynir kaupa hann til Húsavíkur ásamt Herði Arnórssyni. Þengill var upphaflega 72 brl. að stærð með 400 hestafla M.W.M aðalvél. Hann var endurmældur 1972 eða 3 og mælist þá 65 brl. að stærð. Þengill ÞH 114 sökk út af Öxarfirði 16. janúar 1979, áhöfnin 4 menn björguðust um borð í varðskipið Óðinn. Heimild Íslensk skip.
28.3.2008Sigrún Hrönn með góðan afla.Honum var vel brugðið í morgun, línubátnum Sigrúnu Hrönn, þegar komið var að landi eftir velheppnaðann róður. Afli bátsins var um tólf tonn, uppistaðan þorskur og voru Ingólfur skipsstjóri og hans menn að vonum ánægðir. Línan var lögð í Öxarfirði og þar voru einnig línubátar GPG, Háey og Lágey. Þá eru netabátar úr Grímsey og frá Kópaskeri með net sín á þessum slóðum.
27.3.2008Gamalt og nýtt í Hafnarfirði.Hér koma myndir sem Eiríkur frændi minn Guðmundsson sendi mér en hann tók þær í Hafnarfirði á dögunum. Á þeim sjáum við það gamla og liðna og svo hið nýja sem siglir inn í framtíðina.
26.3.2008Beinisvørð á veg til FøroyarBeinisvørð á veg til FøroyarNú seinnapartin umleið kl. 16.00 loysir nýggi Vágstrolarin Beinisvørð í Akureyri og setur kós ímóti Føroyum.
Hans J. Joensen sigur við Suðuroyarportalin, at hetta fer at seinkað fráferðina úr Akureyri nakað og verða teir tí helst ikki á Vági við Beinisvørð fyrr enn síðst í komandi viku.
Myndirnar eru tiknar ónsdagin, eftir at teir vóru lidnir við at mála Beinisvørð. Hans J. Joensen, reiðari á Beinisvørð, sigur við Suðuroyarportalin í kvøld, at teir hava verið í Akureyri og eftirkannað skipið. Hans J. Joensen sigur, at teir fara ætlandi av Akureyri seinni í vikuni og tað tekur umleið tvey døgn at sigla á Vág. Andey hevur higartil fiskað sum rækjutrolari, feskar rækjur, men hevur eisini kókað rækjur umborð. Hans J. Joensen sigur, at nú skipið kemur til Vágs, er nýggj rækjufabrikk við øllum umborð á skipinum, men hendan fabrikkin verður tikin í land og nýggja fabrikkin, sum var umborð á Sancy, verður so sett umborð á Beinisvørð. Hans J. Joensen sigur at enda, at teir vóna at tað ikki tekur meiri enn 2 vikur at gera skipið klárt til fiskiskap.
Tann fyrsti Beinisvørð var ein slupp, sum varð bygd í Brixham í suðurvestur Onglandi í 1884. Í 1900 keyptu íslendingar skipið, sum tá æt "Robert the Devil", í Íslandi æt skipið Robert. Í november 1913 keypti A/S J. Dahl á Gørðunum skipið, sum kom at eita Beinisvørð. Í 1929 fekk hesin fyrsti Beinisvørð ísettan ein einkult cylindara Tuxham motor á 54 hk. Fyrsti Beinisvørð varð 26. mars 1941 søktur av einum týskum flogfari einar 60 fjórðingar úr Nólsoynni - øll manningin varð bjargað. Tann næsti Beinisvørð var ein damptrolari, sum varð bygdur í Port Glasgow í Skotlandi í 1918. Hesin Beinisvørð varð keyptur í Íslandi í 1946, tá æt skipið "Karlsefni". Tað var eisini A/S J. Dahl á Gørðunum, sum keypti hendan Beinisvørð til Vágs. Beinisvørð varð seldur til Danmarkar í november í 1956, har hann var upphøgdur. Og í vikuskiftinum kemur sostatt triði Beinisvørð í røðini til Vágs. Myndirnar av Beinisvørð í dokkini í Akureyri eru tiknar seinnapartin í dag, meðan Beinisvørð varð málað.
25.3.2008Hver er báturinn #2 2008Hver er hannn þessi ? 24.3.2008Tveir norðlenskir rækjutogarar.Nú koma myndir af tveim norðlenskum togurum sem keyptir voru til landsins og brúkaðir til rækjuveiða. Annar smíðaður 1993 í Portúgal fyrir hríseyinga en hinn keyptur notaður frá Grænlandi fyrir húsvíkinga. Þetta eru Eyborgin sem Borg í Hrísey lét smíða og Júlíus Havsteen sem Höfði á Húsavík keypti. Eyborgin var eitt fjögurra systurskipa sem smíðuð voru í Aveiro í Portúgal, hin þrjú fóru á Hornafjörð. Júlíus Havsteen var hinsvegar smíðaður 1987 í Danmörku, í Kristensen nánar tiltekið. Eyborgin var svo lengd í Noregi um 19 metra árið 1996. Í dag er Eyborgin enn Eyborg en Júlíus Havsteen fékk nafnið Rauðinúpur, síðar Sólbakur og nú fyrir skemmstu Sóley Sigurjóns og er í styttingu í Póllandi.
24.3.2008Öngvir bátar, bara fermingarbarnið Heiðdís.Það var lítið gert í báta- og skipamyndunum í gær, páskadag, þar sem Heiðsdís dóttir okkar var fermd í Húsavíkurkirkju. Það var því í nógu að snúast, veislan heima þar sem ríflega 100 gestir samglöddust fermingarbarninu og fjölskyldu þess.
22.3.2008Bangsi verður Siggi Bessa.Nýr Siggi Bessa SF hefur bæst í flota hornfirðinga. Um er að ræða Cleopötru 38, sem áður hét Bangsi BA, og kemur í stað eldri og minni Cleopötru með sama nafni. Raggi P. er á Hornafirði eins og sést á www.123.is/raggip og léði hann mér afnot að myndinni hér að neðan. Það er útgerðarfélagið Erpur ehf. á Hornafirði sem á og gerir Sigga Bessa út.
22.3.2008Gámaflutningaskipið Brúarfoss.Menn eru sumir hverjir áhugasamir fragtskip og því læt ég eina mynd hér inn. Ég hef ekki lagt mig eftir að mynda þau en tek þó af og til myndir af skipum sem koma hingað til Húsavíkur. Þessi á myndinn hér að neðan er Brúarfoss sem kom til Húsavíkur 19 mars 2004 og þá tók ég þessa mynd. Þetta var þá talið lengsta gámaflutningaskip sem hafði lagst að bryggju á Húsavík og sendi ég fréttina hér að neðan í Moggann af því tilefni.
Fimmtudaginn 25. mars, 2004 Á DÖGUNUM kom gámaskip Eimskipafélagsins, Brúarfoss til Húsavíkur í forföllum Mánafoss og lagðist við Norðurgarð. Þar losaði það um 90 gáma og lestaði um 50 slíka. Þetta væri kannski ekki í frásögur færandi nema vegna þess að skipið er, að sögn sérfróðra manna, lengsta gámaskip sem á Húsavík hefur komið. Jafnvel er það talið lengsta skip sem lagst hefur að bryggju á Húsavík. Til samanburðar má nefna að Hofsjökull, sem kom oft til bæjarins á árum áður og lestaði frosinn fisk, var 118,15 metrar á lengd og skemmtiferðaskipið Hanseatic sem heimsótt hefur Húsavík undanfarin sumur er 123 metrar að lengd. Brúarfoss er 126,63 metrar á lengd og 20,53 metrar á breidd og 7,760 brúttónn að stærð, til gamans má geta þess að Mánafoss er 100,60 metrar á lengd og 18,80 metra breiður og 4.450 brúttótonn að stærð og því talsverður stærðarmunur á þeim. 22.3.2008Þrír hornfirðingar á síld.Hér eru myndir af þrem hornfiskum bátum teknar á síldarvertíð austanlands. Nú er minnið ekki alltaf upp á marga fiska en ég var á síld 1984 og 1986 og eru þessar myndir teknar þá.
21.3.2008Kannast menn við þennnan ?Jóhanna GK er báturinn.
20.3.2008Skarfurinn.Hér birtast mynd úr safni Sigurgeirs Harðarsonar. Á myndinni er Jósteinn Finnbogason, sem hafði viðurnefnið Skarfurinn, á Hafdísi sinni við veiðar á Skjálfanda.
20.3.2008Danski Pétur og Júlía.Það er ekki vitlaust að rifja upp þennan lit sem Emil Andersen málaði bátana sína í. Hér kemur Danski Pétur, mynd frá Tryggva Sig. Læt eina af Júlíu VE, mynd frá Hreiðari Olgeirssyni, fylgja með þó hún sé orðin blá að lit..
19.3.2008Nýr vefur um báta- og skipasmíði við Eyjafjörð.Árni Björn Árnason sem lengi vann í Slippstöðinni á Akureyri hefur opnað nýjan vef um báta- og skipasmíði við Eyjafjörð. Slóðin á síðuna er www.aba.is og í tilefni þessarar síðu, sem eigandi hennar hefur lagt mikla vinni í, set ég hér inn nokkra báta sem smíðaðir voru á Akureyri.
19.3.2008Siglunesið verður þjónustuskip.Fyrirtækið TC Offshore ehf. í Reykjanesbæ hefur keypt togbátinn Siglunes SH af Brim hf. en áður hafði fyrirtækið keypt annan bát, Skinney SH, af Skinney- Þinganesi hf. á Hornafirði.
18.3.2008Tveir gulir og gamlir.
18.3.2008Sæborgin á netum í Breiða.Þessar myndir fékk ég sendar frá Hraunútgerðinni á Húsavík sem gerir út vélbátinn Sæborgu ÞH 55. Sæborgin hefur verið við netaveiðar á Breiðafirði að undanförnu og fiskað vel. Aflanum er ekið norður til vinnslu hjá GPG á Húsavík.
18.3.2008Skinney mun þjónusta olíuiðnaðinn í Norðursjó.Skinney SF-30, sem Skinney-Þinganes hf. á Hornafirði á og hefur gert út, hefur verið seld til félags sem mun sinna þjónustuverkefnum fyrir í olíuiðnaðinn í Norðursjó. Álasund ehf. annaðist söluna að því er fram kemur á fréttavefnum skip.is. Skinney SF, sem er 175 brúttótonn að stærð, var síðast á humarveiðum í september í fyrra en hefur legið bundin síðan. Auk humarveiða hefur Skinney stundað netaveiðar og veiðar með fiskitroll. Sem kunnugt er eru tvö togskip í smíðum fyrir Skinney-Þinganes í Tævan og verða þau afhent í vor. www.horn.is
18.3.2008KristinaFréttaritari Skipamynda í suðurhöfum sendi þessa mynd í dag af Kristinu áður Engey RE. Myndin er tekin undan Afríkuströndum.
16.3.2008Geiri Péturs á Breiðafirði.Hér kemur enn ein myndin sem Hreiðar Olgeirsson tók á Breiðafirði og að þessu sinni af Geira Péturs ÞH 344. Geiri Péturs fiskaði ávallt vel í Breiðafirði og var með aflahæstu bátum. Hann var smíðaður á Akureyri 1971 og hét þá Sigurbergur GK 212. Annað um þennan bát hefur komið fram hér áður og því segi ég stopp.
Flettingar í dag: 335 Gestir í dag: 66 Flettingar í gær: 1862 Gestir í gær: 463 Samtals flettingar: 1569355 Samtals gestir: 401277 Tölur uppfærðar: 20.3.2010 07:15:55 |
Vafraðu umEldra efni
clockhere Tenglar
Um mig Nafn: Hafþór HreiðarssonFarsími: 8956744Tölvupóstfang: korri@simnet.isHeimilisfang: Sólbrekka 29Staðsetning: HúsavíkHeimasími: 4642030Önnur vefsíða: www.640.is |