Krakkar á ferð og flugi um Asíu
FréttasíðaVið sjávarsíðuna 31.12.2007Þakka fyrir innlitið á árinu..... Áramótabrennan á Húsavík 2006. © Hafþór.
30.12.2007Bátur vikunnar var smíðaður í Hollandi.Bátur vikunnar var smíðaður í Hollandi árið 1954 og hét sama nafninu alla tíð. Eigendur hans frá upphafi árs 1955 voru þeir Þorstein Sigurðsson og Ólaf Sigurðsson í Vestmannaeyjum. Hér er um að ræða stálbátinn Ófeig III VE 325 sem upphaflega mældist 66 brl. að stærð. Ófeigur III var lengdur á Akranesi 1965 og mældist þá 81 brl. að stærð. Þá var einnig skipt um aðalvél. í stað 220 hestafla Grenaa var sett í hann 380 hestafla Caterpillar. í lok árs 1970 er Þorsteinn Sigurðsson einn skráður eigandi bátsins. Bátnum var breytt 1974 og hann endurmældur, mældist þá 86 brl. að stærð. Ný 425 hestafla Caterpillar var sett í bátinn árið 1977 og árið 1985 var skráður eigandi Ófeigur sf. í vestmannaeyjum. Ófeigur III strandaði við Þorlákshöfn árið 1988 og eyðilagðist en áhöfnin, 3 menn, bjargaðist til lands. Heimild Íslensk skip.
 707.Ófeigur III VE 325. © Hreiðar Olgeirsson.
29.12.2007Þessir tveir voru smíðaðir fyrir ólsara.Hér koma myndir af tveimur eikarbátum sem smíðaðir voru á Akureyri fyrir ólafsvíkinga. Á efri myndinni er Fanney SK 83 sem upphaflega hét Jón Jónsson SH 187 og var smíðaður fyrir Halldór Jónsson 1959. Á neðri myndinni er Hafborg SI 200 sem upphaflega hét Jökull SH 126 og var smíðaður fyrir þá bræður Víglund og Tryggva Jónssyni árið 1957. Jón Jónsson var upphaflega mældur 70 brl. en Jökull var nokkru minni eða 54 brl.
 619.Fanney SK 83 ex Hrafnsey SF. © Hafþór.
 625.Hafborg SI 200 ex Hafborg SK 50. © Hreiðar Olgeirsson.
Nú væri gaman að fá nánari upplýsingar um smíði þessara báta. Voru þeir ekki smíðaðir hjá sömu skipasmíðastöð ? Hver teiknaði þá ?
28.12.2007Um borð í Héðni ÞH 57.Hér koma tvær myndir sem Sigurgeir Harðarson tók um borð í Héðni ÞH 57. Þær eru teknar þegar Héðinn var við síldveiðar í Norðursjó.

 Um borð í Héðni ÞH 57. © Sigurgeir Harðarson.
27.12.2007Þröstur ÍS 222.Þessi bátur hét upphaflega Búðafell SU 90 en þegar ég tók þessa mynd hét hann Þröstur ÍS 222. Myndin er tekin í Þorlákshöfn á vetrarvertíðinni 1982. Í dag heitir þessi bátur Maron Gk 522.
 363.Þröstur ÍS 222 ex Þröstur HU 131. © Hafþór.
26.12.2007Hvað eiga þessir bátar sameiginlegt ?Hér koma myndir af tveim bátum og ég spyr hvað eiga þeir sameiginlegt í sinni útgerðarsögu ? Það kom fljótt það sem ég var að fiska eftir, þeir voru báðir í eigu Sigurðar Péturssonar og hétu Pétur Sigurðsson RE 331. En þá spyr ég aftur, átti stálbáturinn systurskip í íslenska flotanum ?
 708.Jóhanna Magnúsdóttir RE 70. © Hafþór.
 167.Sigurjón Arnlaugsson HF 210. © Hreiðar Olgeirsson.
26.12.2007Hver er báturinn # 25 2007 ?, Jú það er Kristján SH 6.Kristján SH 6 er báturinn og á myndinni er hann tilbúinn til sjósetningar í október 1961. Sigurður Bergsveinsson sendi mér myndina sem Ágúst Sigurðsson tók. Báturinn var teiknaður og smíðaður af Kristjáni Guðmundssyni sem kallaður var Stjáni Slipp en hann fæddist 1911 og lést 1999. Stjáni slipp lærði skipasmíðar hjá Gunnari Jónssyni í Skipasmíðastöð KEA á Akureyri. Kristján SH 6, sem er með skipaskrárnúmerið 647, er fyrsti plankabyggði báturinn sem var smíðaður í Stykkishólmi. Hann er 21 brl. að stærð, 14,64 metrar að lengd, 4 metrar á breidd og dýptin er 1,8 metrar. Kristján SH 6 hét síðar Konráð BA 152, Helga Björg HU 7, Reginn HF 228 og Sindri SH 121. Í dag heitir hann Gæskur KÓ og er í eigu Magnúsar Kristjánssonar sem rekur áfangaheimilið að hafnarbraut 21 í Kópavogi. Skipt var um brú á bátnum og Sigurður Pétursson í Grundarfirði sem átti bátinn um skeið kom með þá tilgátu að það hafi verið gert þegar hann var á Skagaströnd. Þangað kom báturinn í árslok 1972. Vita menn eitthvað um þetta, þ.e.a.s. hvenær var skipt um stýrishús á bátnum ? Hér er að neðan myndin sem Ágúst Sigurðsson tók, það er mynd af bátnum í Íslensk skip þar sem hann heitir Helga Björg, ég á myndir af honum sem Reginn HF en á einhver mynd af honum sem Konráð BA 152 ? Ég vil þakka Sigurði Bergsveinssynir fyrir þessa mynd og þær upplýsingar sem fylgja henni.
 647.Kristján SH 6.
 647.Reginn HF 228 ex Helga Björg HU 7. © Hafþór.
Það verður að taka áskorun um getraun, hver er hann þessi ? Eru menn ekkert að leggja höfuðið í bleyti yfir jólin ? Hver er hann þessi ?



25.12.2007Arthur velur Sigurð Gunnarsson.....Arthur Bogason skrifar grein í jólablað Fiskifrétta og í henni kemur við sögu Sigurður Gunnarsson trillukarl á Húsavík. Ég átti myndina af Sigurði sem birtist með greininni og fannst tilvalið að birta greinina hana hér. Ég hafði samband við Arthur og falaðist eftir henni sem og leyfi til að birta hana. Það var auðsótt mál og þakka ég Arthuri hér með fyrir liðlegheitin. En svona er greinin:
 Sigurður Gunnarsson © Hafþór.
Útgerðarmaður ársins Mitt í svartasta skammdeginu gengur í garð hátíðin sem kennd er við ljós og frið. Vissulega tindra jólaljós á jörðu og stjörnur á himni, en ríkir friður í hjörtum okkar ? Dag hvern streyma tugþúsundir tonna af stálblóði í bifreiðalíki eftir malbikuðum æðum borgarinnar, æðandi að Mammonsmusterunum sem eru við að hrynja undan verslunargóssinu. Hvern einasta morgun hraukast upp dagblöð, auglýsingapésar og einblöðungar inn um bréfalúgunnar, myndskreytt kjöti, flatskjám, undirfötum, Hummerum og tölvurusli. Samhliða umfjöllun um bjóralið og nuddað nautaskjöt frá Japan á kílóverði sem jafngildir vikulaunum margra á vinnumarkaði eru greinar um fólk sem á hvorki í sig eða á. Ætli afmælisbarninu sé skemmt ?
Ég skal fúslega játa að ég er jafn sekur og þorri landsmanna í þessum efnum. Sem barn var tilhlökkunin fölskvalaus: stórfjölskyldan sameinuð, sungin jólalög, farið í messu, ilmur af jólasteik, pakkarnir - og þessi ólýsanlega sæla að leggjast í nýuppábúið rúm með nýjustu Óla og Magga bókina og svífa inní draumalandið mitt í ævintýri.
Nú hnoðast ég sem aðrir eftir malbikinu, oftast á síðstu stundu, í leit að "viðeigandi" jólagjöfum, með öndina í hálsinum yfir því að gleyma einhverjum sem síst á það skilið.
Ástæða þess að ég tíni til framantalið er símtal sem ég átti um mitt ár við góðan vin, trillukarl frá Húsavík, Sigurð Gunnarsson. Sigurður var einn dyggasti stuðningsmaður minn þegar ég stóð í því árið 1985 að stofna Landssamband smábátaeigenda. Hann á þar stærri þátt en flesta grunar. Í spjalli okkar ræddum við sem endranær landsins gagn og nauðsynjar, fiskgengd og fuglafar, en á síðarnefnda sviðinu er hann sjálfmenntaður sérfræðingur. Í samtalinu greindi hann mér hinsvegar frá nokkru sem hefur setið í huga mér æ síðan.
Sigurður hafði tekið þá ákvörðun, meðvitaður um illvígan sjúkdóm sem hann glímir við og eftir að hafa frétt af hinum gríðarlega niðurskurði í þorskveiðiheimildum, að láta tveimur trillukörlum eftir kvótann sinn, endurgjaldslaust, meðan hann lífsandann drægi. Hann sagði hreint út: "ég fer ekki oftar á sjó og við konan höfum nóg. Börnin spjara sig prýðilega. Ef ég geri þetta komast þeir betur en ella í gegnum þrengingarnar. Ég myndi gjarnan vilja sjá einhverja fylgja þessu fordæmi". Það er ekki á hverjum degi sem ég verð orðlaus, en svo sannarlega varð ég það í þetta skipti.
Þessa dagana, mitt í öllu atinu kringum Mammon, verður mér hugsað til þessa vinar míns. Mitt í öllu atinu er til maður eins og hann með hugarfar sem markast af fórnfýsi, samhug og kjarki til að taka ákvörðun langt fram yfir eigin hagsmuni. Undanfarið hafa einstaklingar verið valdir "menn ársins" á hinum ýmsu sviðum þjóðlífsins. Þessir einstaklingar hafa sýnt hugprýði og þor til að standa fram úr skaranum.
Ég ætla því að nota tækifærið og velja útgerðarmann ársins, Sigurð Gunnarsson, trillukarl frá Húsavík.
Lesendum óska ég gleðilegra jóla og heillaríks komandi árs. Megi friður og gleði fylgja ykkur.
Arthur Bogason Formaður Landssambands smábátaeigenda.
Sigurður hefur átt smábáta undanfarna áratugi sem hafa borið nafnið Sólveig. Ég á myndir af þeim tveim síðustu og hér koma þær.
 Sólveig ÞH 226. © Hafþór.
 Sólveig ÞH 226. © Hafþór. Sigurður Gunnarsson var heiðraður á Sjómannadaginn árið 2003 og skrifaði ég frétt um það í Morgunblaðið, þar segir um Sigurð:
Sigurður Gunnarsson er fæddur í Arnarnesi í Kelduhverfi 1931. Sigurður byrjar til sjós 1958. Síðan var hann á smærri bátum frá Raufarhöfn þar sem þau hjón bjuggu í tvö ár. Sigurður flytur til Húsavíkur 1958 með fjölskylduna og setja þau upp heimili að Ytri-Hlíð þar sem hann býr enn. Árið 1961 stofnar Sigurður til útgerðar ásamt öðrum er þeir félagar kaupa 16 tonna bát sem þeir nefna Andvara ÞH 81 og síðar 36 tonna bát sem þeir nefndu Glað ÞH 150. Árið 1972 stofnar Sigurður til eigin útgerðar er hann kaupir 3 tonna trillubát, Sólveigu ÞH sem hann gerir út í sjö ár. Þá kaupir hann sér 7 tonna hálfdekkaðan bát sem hann gerir út í 17 ár og 1998 kaupir hann síðan 5 tonna plastbát en báðir þessir bátar fengu sama nafn og sá fyrsti. Sigurður stundar enn sjóinn á Sólveigu ÞH 226 og hefur verið farsæll í starfi. Kona hans er Þorbjörg Theódórsdóttir úr Öxarfirði.
 Sigurður Gunnarsson og Þorbjörg Theódórsdóttir. © Hafþór.
24.12.2007Gleðileg jól. Húsavíkurhöfn 23.12.2007 © Hafþór.
24.12.2007Konni Júl GK seldur.Sá á heimasíðu einnar skipasölu að Konni Júl GK er seldur, veit einhver hver er kaupandinn ?
 2704.Konni Júl GK 704. © Hafþór.
23.12.2007Bátur vikunnar var smíðaður á Akureyri.Það er engin ástæða til að sinna ekki síðunni þó það séu að koma jól. Þau koma. Bátur vikunnar að þessu sinni var smíðaður á Akureyri árið 1980. Reyndar er frekar um skip að ræða en bát því hér verið að fjalla um nóta- og togskipið Hilmi SU 171 sem var í eigu Útgerðarfélagsins Hilmis hf. á Fáskrúðsfirði. Hilmir mældist 642 brl. að stærð og var með 2400 hestafla Wichmann aðalvél. Hann var seldur til Chile 1993. Þá átti Síldarvinnslan hf. orðið helmings hlut í útgerðinni.
 1551.Hilmir SU 171. © Hreiðar Olgeirsson.
22.12.2007Annar Erling, nú KE 140.21.12.2007Erling KE 45.Erling KE 45 var gerður út rækju frá Húsavík hér áður fyrr og tók ég þessa mynd af honum er hann var að koma úr rækjutúr. Eigandi skipsins var Saltver hf. í Keflavík. Erling hét upphaflega Pétur Jóhannsson SH 207, þ.e.a.s. á íslenskri skipaskrá, en skipið var keypt til íslands árið 1974. Erling var smíðaður í Noregi 1969 en það er Smári hf. í Ólafsvík sem kaupir hann til landsins. Í árslok 1976 var skipip selt Höfn hf. á Siglufirði, nafn og númer óbreytt, og tæpu ári síðar kaupa Ingvi Rafn Albertsson skipstjóri, Askja hf. og Friðþjófur hf. á Eskifirði skipið og nefna hann Seley SU 10. Það er svo haustið 1982 sem Saltver hf. kaupir Seleyna og fær skipið þá nafnið Erling. Erling var, eins og áður segir, smíðaður í Noregi 1969 og mældist þá 236 brl. að stærð. Í honum var 700 hestafla Wichmann aðalvél. Hann var yfirbyggður 1977 og síðan lengdur 1986. Eftir lenginguna mældist hann 328 brl. að stærð. 1985 var sett í hann ný aðalvél, 1100 hestafla B & W Man. Heimild Íslensk skip.
Erling KE 45 sökk 11. desember 1990 eftir að hafa steytt á skerinu Borgarboða sem er skammt frá Hornafjarðarósnum. Þrettán skipverjar komust heilu og höldnu í gúmíbáta og þaðan yfir í Þorstein GK 16 hálftíma eftir að skip þeirra steytti á skerinu. Heimild Morgunblaðið 12. desember 1990.

1361.Erling KE 45 ex Seley SU 10. © Hafþór.
21.12.2007Hvort á maður að hlæja eða gráta ?Hvort á maður að hlæja eða gráta ? eftirfarandi frétt birtist í dag á www.visir.is :
Dala-Rafn heitir þorskskip sem Þórður Rafn útgerðarmaður í Vestmannaeyjum hefur fest kaup á. Skipið kom siglandi inn í höfnina í Eyjum fyrir stundu. Dala-Rafn er sjötta skipið sem bætist við flota Vestmannaeyinga á árinu en þrjú skip hafa verið seld frá Eyjum á þessu ári. Af þessum sex skipum eru þrjú þeirra nýsmíðuð. Talið er að Dala-Rafn sé fjárfesting uppá um þrjá milljarða króna og ríkti mikil hamingja á höfninni í Vestmannaeyjum þegar skipið kom siglandi. 20.12.2007Þorsteinn EA 810.Ég sá á dögunum spekúlaresjónir á netinu um Þorstein ÞH 360, áður Þorsteinn EA 810 og upphaflega Helga II RE 373. Mönnum fannst hann ekki beint laglegur eftir breytingarnar sem fram fóru í Póllandi á haustmánuðum árið 2000 og í ársbyrjun 2001. Morgunblaðið sagði frá komu skipsins til heimahafnar eftir breytingarnar á eftirfarandi hátt:
Miðvikudaginn 24. janúar, 2001 - Akureyri og nágrenni ÞORSTEINN EA, fjölveiðiskip Samherja hf. á Akureyri, kom til heimahafnar frá Póllandi í gær, eftir umfangsmiklar breytingar og er skipið nú eitt það öflugasta í íslenska fiskiskipaflotanum. Skipið var lengt um 18 metra, stýrishús var fært fram um 11 metra, sett var 1.500 hestafla ljósavél um borð, auk ýmissa annarra breytinga. Með breytingunum eykst burðargeta Þorsteins EA um 75% og getur skipið nú borið um 2.000 tonn af loðnu, að sögn Kristjáns Vilhelmssonar, framkvæmdastjóra útgerðar Samherja.
Þorsteinn hélt til Póllands hinn 1. október í haust en breytingar á skipinu fóru fram hjá skipasmíðastöðinni Grysia í Stettin. Kristján sagði að verkið í Póllandi hefði gengið ágætlega en á því urðu nokkrar tafir, m.a. þar sem ráðist var í meiri framkvæmdir en ráð var fyrir gert í upphafi. Þorsteinn hélt frá Póllandi seint á fimmtudag og tók siglingin heim því rúma fjóra og hálfan sólarhring. Kristján sagði að siglingin heim hefði gengið vel en ráðgert er að skipið haldi til loðnuveiða eftir 2-3 daga.
Ég var á kajanum þegar Þorsteinn kom og tók margar myndir við fremur erfið birtuskilyrði og hér er ein þeirra. Neðri myndina tók Sigfús Jónsson og sýnir hún Þorstein fyrir breytingarnar.
 1903.Þorsteinn EA 810 ex Helga II RE 373. © Hafþór.
 1903.Þorsteinn EA 810 ex Helga II RE 373. © Sigfús Jónsson.
19.12.2007Eitt ár í dag síðan Wilson Muuga strandaði við Hvalsnes.Í dag er ár liði frá strandi flutningaskipsins Wilsons Muuga í Hvalsnesfjöru. Svo segir á www.vf.is í dag : Í dag, þann 19. desember, er liðið eitt ár frá strandi flutningaskipsins Wilson Muuga í Hvalsnesfjöru. Veður var afleitt og foráttubrim við strandstað þennan örlagaríka morgun og aðstæður hrikalegar.
Átta skipsverjar á danska varðskipinu Triton voru hætt komnir í brimsköflunum þegar gúmbát þeirra hvofldi. Einn þeirra drukknaði en hinum var bjargað með ævintýralegum hætti úr öldum sem voru á hæð við þriggja hæða hús og vann þyrlusveit Landshelgisgæslunnar þar mikið afrek.
Fljótlega var ljóst að skipið sat pikkfast í fjörunni og því yrði engan veginn bjargað. Árni Kópsson og hans menn voru því ekki sammála og í byrjun apríl tókst þeim með útsjónarsemi og miklu snarræði að koma skipinu aftur á flot.
Reynir Sveinsson fréttaritari Morgunblaðsins í Sandgerði, faðir Gísla á www.aflafrettir.com, sendi mér þessa mynd á sínum tíma og þakka ég honum fyrir hana hér og nú.

Wilson Muuga á strandstað. © Reynir Sveinsson.
Nú fyrir jólin kom 14. bókin í Útkallsbókaflokknum eftir Óttar Sveinsson og að venju lýsir hann þessum atburðum á dramatískan og líflegan hátt. Ég var með bókina, Útkall, þyrluna strax !, að láni úr bókasafninu á dögunum og er óhætt að mæla með henni. Hefði helst viljað lesa hana alla í einu en þá hefði ekkert birst á síðunni þann daginn svo ég las hana í tvennu lagi.

19.12.2007Þorsteinn GK 16 kemur að bryggju.Hér mynd af netabátnum Þorsteini GK 16 koma að bryggju í Grindavík fyrir nokkrum árum. Báturinn, sem í dag heitir Kristbjörg SK 82, hét upphaflega Torfi Halldórsson ÍS og var smíðaður á Ísafirði 1971.
 1159.Þorsteinn GK 16 ex Svanur SH 111. © Hafþór.
18.12.2007Skipaskrá og sjómannaalmanak Áraklóar komið út.
Skipaskrá og sjómannaalmanak Áraklóar, önnur útgáfa, er komin út og er bókinni dreift frítt til skipa og báta í rekstri, auk fleiri aðila. Dreifingu á bókinni lýkur fyrir áramót. Auglýsingar kosta bókina. Skipaskráin og sjómannaalmanakið er hefðbundin handbók sjómanna með upplýsingar um: sjávarföll, vita- og sjómerki, veður og sjólag, fjarskipti, öryggismál og fleira er í bókinni.
Lagakaflinn er á geisladisk og það fyrirkomulag nýtur vinsælda hjá sjómönnum, ýmislegt annað efni eins og eyðublöð, afla- og fiskikort og aðrar upplýsingar eru á geisladisknum. Í skipaskrá eru öll skip og bátar sem eru á skrá hjá Siglingastofnun, skránni er skipt í tvo hluta, mynda- og textaskrá. Í myndaskrá eru skip og bátar sem eru í rekstri, þar með taldir opnir bátar. Í textaskrá eru upplýsingar um önnur skip og báta. Ritstjóri bókarinna er Jón Sigurðsson, útgefandi er Árakló slf.
www.interseafood.com
18.12.2007Fyrir daga nýsköpunar.Hafliða Óskarssyni hefur oft verið mikið niðri fyrir þegar salernismál í fiskiskipaflotanum hefur borið á góma. Við höfum nefnilega rætt þetta áður. Hann sendi mér því mynd sem sýnir hvernig menn fóru að því að tefla við páfann hér áður fyrr. Myndina tók Sigurgeir heitinn Pétursson fyrrum togaraskipstjóri og kallaði hann myndina Fyrir daga nýsköpunar.
 Fyrir daga nýsköpunar.
17.12.2007Plast, tré, stólar, kojur, árið 1907 eða 2007.Hafliði fyrrum skipsfélagi minn hæðist að lýsingu þeirra Trefjamanna (eða kannski hann sé að bauna á mig) á nýjum báti sem lýst er hér að neðan. Þá hafa oftar en einu sinni komið athugasemdir um hve mikið sé framleitt af plastbátum í dag. Skrýtið að enginn sé að smíða minni skip út tré eða stáli, kannski bara enginn vilji kaupa þá ? Ég set hér inn myndir af tveim bátum, annars vegar eikarbátnum Dagrúnu ST 12 og hinsvegar plastbátnum Sæþór EA 101. Dagrún smíðuð árið 1971 á Skagaströnd og eflaust verið fallegt fley á þeim tíma sem og í dag og ekki er ég að lasta bátinn. tek hann bara sem dæmi. Sæþór var smíðaður í Hafnarfirði og afhentur í lok árs 2006 og er glæsileg smíði. Ég er ekkert að upphefja Sæþór, tek hann bara sem dæmi. Ef, og ég segi ef, ég væri að leita eftir plássi á netabát undir 30 tonnum og mér byðist að koma um borð í annan hvorn þessa báta, það væri róið frá sömu stöðum og á sömu kjörum, þá yrði Sæþór fyrir valinu. Af hverju ? jú eins og Hafliði Óskarsson sagði í álitinu við bátinn frá Trefjum, það er árið 2007.
 1184.Dagrún ST 12 ex Guðmundur Þór HU. © Hafþór. Stærð og mál:
| Brúttórúmlestir |
20.0 |
Nettótonn |
7.6 |
| Brúttótonn |
25.5 |
Rúmtala |
88.5 |
| Mesta lengd |
14.76 |
Skráð lengd |
14.2 |
| Breidd |
4.08 |
Dýpt |
1.63 |
 2705.Sæþór EA 101. © Hafþór. Stærð og mál:
| Brúttórúmlestir |
23.6 |
Nettótonn |
8.7 |
| Brúttótonn |
29.0 |
Rúmtala |
|
| Mesta lengd |
14.99 |
Skráð lengd |
14.97 |
| Breidd |
4.18 |
Dýpt |
1.62 | Plastbátar eru plastbátar og það eru til bæði ljótir og fallegir plastbátar. Trébátar eru trébátar og það eru til bæði ljótir og fallegir trébátar. Stálbátar eru stálbátar og það eru til bæði ljótir og fallegir stálbátar.
Svo er spurning hvort 99.99 % (áætlað) plastbáta þurfi endilega að vera hvítir.
17.12.2007Ný Cleopatra 36 til Finnmerkur.Skoða nánar16.12.2007Bátur vikunnar er Gissur ÁR 6.Skoða nánar16.12.2007Niðurrif skipa í Krossanesi.Skoða nánar15.12.2007Í Aðaldalshrauni.Skoða nánar14.12.2007Sæbjörg SU 403.Skoða nánar13.12.20073 x grindvíkingar.Skoða nánar12.12.2007Eldborg GK 13.Skoða nánar12.12.2007Rækjubátar í höfn á Húsavík 1993.Skoða nánar11.12.2007Húsey ÞH 382.Skoða nánar11.12.2007Bryggjuspjall, um enska boltann.Skoða nánar10.12.2007Karólína ÞH á siglingu.Skoða nánar10.12.2007Ný Karólína ÞH kom til heimahafnar í gærkveldi.Skoða nánar9.12.2007Dúa er bátur vikunnar.Skoða nánar8.12.2007Már, Sigrún og Hrafn Sveinbjarnarson.Skoða nánar8.12.2007Þorsteinn Gíslason og Jón Kjartansson SU 111.Skoða nánar7.12.2007Jörundur EA 335.Skoða nánar7.12.2007Hoffellið búið með síldarkvótannSkoða nánar6.12.2007Gramsað í soðiðSkoða nánar5.12.2007Moli var á Snæbjörginni ÍS.Skoða nánar4.12.2007Pétur Jónsson RE 69.Skoða nánar4.12.2007Nýr Siggi Gísla EA sjósettur á Siglufirði.Skoða nánar3.12.2007Bátur vikunnar strandaði.............Skoða nánar2.12.2007Ný Karólína ÞH sjósett í Hafnarfirði.Skoða nánar2.12.2007Bátarnir tveir sem sukku voru eitt sinn í húsvíska bátaflotanum.Skoða nánar2.12.2007Tveir bátar sukku um helgina, í höfn.Skoða nánar1.12.2007Hvar er myndin tekin ?Skoða nánarFara á upphafssíðu
Flettingar í dag: 157 Gestir í dag: 42 Flettingar í gær: 1938 Gestir í gær: 469 Samtals flettingar: 1573134 Samtals gestir: 402155 Tölur uppfærðar: 22.3.2010 03:44:03
|
Vafraðu um
clockhere TenglarHafþór Hreiðarsson 8956744 Sólbrekka 29 Húsavík 4642030
|