|
Skipamyndir Hafþórs Hreiðarssonar |
|
FréttasíðaVið sjávarsíðuna 30.6.2007Er i Tyrklandi.Nu er eg staddur i Icmeler i Tyrklandi en laet tad ekki stoppa mig i ad sinna sidunnı. Set her inn mynd af Hrafni Sveinbjarnarsyni ııı og bid serfraedıngana sem geta sagt okkur frodleık um skipid ad gera tad fyrir mig.
28.6.2007Í innsiglingunni til Grindavíkur fyrir margt löngu síðan.
28.6.2007Bátur vikunnar var smíðaður í Skipavík árið 1972.Bátur vikunnar var smíðaður í Skipavík árið 1972 fyrir Hraðfrystihús Stokkseyrar hf. sem gerði bátinn út alla tíð. Hann hét Jósep Geir ÁR 36 og var 47 brl. að stærð með heimahöfn á Stokkseyri. Báturinn sökk að morgni 26. marz 1991 suðaustur af Þorlákshöfn. Áhöfninni, sjö mönnum, var bjargað um borð í Fróða ÁR 33 .
26.6.2007Fyrsta myndbandið er komið inn á Skipamyndir.Fyrsta myndbandið er komið inn á síðuna og er það af Sigrúnu Hrönn ÞH 36 á skemmtisiglingu um Skjálfandaflóa. Þetta er frumraun mín í gerð myndbanda fyrir tölvur og sennilega sést það mjög vel á vinnubrögðunum. Það er tengill hér til hægri sem heitir myndbönd og þar er myndbandið að finna. 26.6.2007Sigrún Hrönn ÞH 36 á naustavíkinni.Hér er frétt um Sigrúnu Hrönn ÞH 36 af heimasíðu Trefja ehf. í Hafnarfirði :
25.6.2007Varði stundar sjóinn við Ghana.Varði félagi minn, eða Guðvarður Jónsson eins og hann heitir réttu nafni, hefur stundað sjóinn á hinum ýmsu hafsvæðum heimsins. Í dag er hann vélstjóri á frystitogara sem heitir Theresa og veiðir við strendur afríkuríkisins Ghana. Theresa hét áður Sjúrðaberg og var gerð út frá Færeyjum en er nú stjórnað af íslendingum.
Theresa við festar undan Ghanaströndum. 25.6.2007Sigrún Hrönn ÞH 36.Ég fór í skemmtilega siglingu á Skjálfanda í dag með Sigmari Ingólfssyni á Sigrúnu ÞH 136. Erindið var að mynda Sigrúnu Hrönn ÞH 36, nýja línubátinn sem kom til heimahafnar aðfaranótt laugardagsins síðasta. Við fórum víða um flóann og kem ég myndum úr siglingunni í albúm fljótlega. Hér eru nokkrar myndir síðan í dag.
24.6.2007Dagfari ÞH 70 að háfa síld úr nótinni.Á þessari mynd sem er úr safni Hreiðars Olgeirssonar er síldarskipið Dagfari ÞH 70 að háfa síld úr nótinni. Hreiðar var skipverji á Dagfara sem var í eigu bræðranna Stefáns og Þórs Péturssona en skipstjóri var Sigurður Sigurðsson.
23.6.2007Njörður ÞH 44 með nótina á síðunni.Hér er ein gömul úr safni Hreiðars Olgeirssonar, tekin einhvern tímann á árunum 1961-1963. Þarna er fyrsti bátur þeirra Skálabrekkufeðga, Njörður ÞH 44, með nótina á síðunni. Blíðuveður er þarna, líklega að kvöldlagi eða þá um nótt. Það liggur við að maður trúi rómantíkinni í sjómannasöngvum fyrri ára þegar maður sér þessa mynd. Þetta gæti meira segja verið á Grímseyjarsundi.
23.6.2007Gulli Alla sagði það.................ótækt að hafa ekki almennilega mynd af Bangsa BA á síðunni og sendi mér því þessa mynd.
23.6.2007Nýr og glæsilegur línubátur kom til Húsavíkur í nótt sem leið.Nýr og glæsilegur línubátur kom til heimahafnar á Húsavík í fyrsta skipti í nótt sem leið. Nýr fiskibátur, Sigrún Hrönn ÞH 36, kom í fyrsta skipti til heimahafnar á Húsavík í nótt eftir siglingu frá Hafnarfirði.
Sigrún Hrönn ÞH, sem er í eigu útgerðarinna Barms ehf., er 15 bt. yfirbyggður línubátur af gerðinni Cleópatra 38 smíðaður hjá Trefjum ehf. í Hafnarfirði.
Báturinn er allur hinn glæsilegasti, 715 hestafla Volvo Penta aðalvél sér um að koma honum áfram og þá er hann með 17 þúsund króka beitningavél um borð. Að úgerðinni standa Ingólfur H. Árnason skipstjóri og fjölskylda.
2736.Sigrún Hrönn ÞH 36. 22.6.2007Bátur vikunnar var eitt sinn síldarbátur.Bátur vikunnar að þessu sinni var smíðaður fyrir Guðmund Jónsson í Garði árið 1965, í Noregi. Hann hét Jón Garðar GK 475 og mældist upphaflega 317 brl. að stærð. 1975 var báturinn seldur Hilamri Rósmundssyni og Theódóri Ólafssyni Vestmannaeyjum og nefndu þeir hann Sæbjörgu VE 56. Skipið var lengt og yfirbyggt 1978. Sæbjörgin strandaði austan við Stokksnes þann 17 des. 1984 og eyðilagðist. Áhöfnin, 14 manns, bjargaðist í land með hjálp björgunarsveitarinnar á Hornafirði. Heimild: Íslensk skip eftir Jón Björnsson, 1. bindi.
Hvar í Noregi var Jón Garðar smíðaður ? 21.6.2007Afmæli Ellu haldið í Sultum.Er búinn að setja inn myndir úr afmæli Ellu sem haldið var í hlöðunni í Sultum þann 16 júní sl. Reyndar er afmælið, hún verður fertug, ekki fyrr en 6 júlí en þetta var eina helgin sem heppilegt þótti að halda upp á afmælið. Myndirnar eru í albúmi í flokki fjölskyldumynda.
21.6.2007Tappinn er Mánatindur GK 240.Tappinn sem spurt var um nafn á hér að neðan er 181 Mánatindur GK 240. Upphaflega Sigurðu Bjarnason EA 450.
181.Mánatindur GK 240. 21.6.2007Aas Mek. Verksted AS. í Vestnes í Noregi.Aas Mek. Verksted AS. í Vestnes í Noregi kom fyrir í færslu hér að neðan þar sem sagði frá komu norska brunnbátsins til Húsavíkur fyrir skemmstu. 1825.Geiri Péturs ÞH 344 sem Korri hf. keypti fráTromsö 1987 þar sem hann hét Rosvik var einmitt smíðaður hjá Aas Mek. Verksted AS árið 1984. Bátnum var siglt frá Tromsö þar sem hann var afhentur og fór síðan í breytingar í skipasmíðastöðinni.
20.6.2007Sigurvin dró Þórsnes II að landi.Línubáturinn Þórsnes II SH 109 frá Húsavík var dreginn í land af björgunarskipinu Sigurvin frá Siglufirði í gærkvöldi. Komu skipin til hafnar á Húsavík undir miðnætti. GPG á Húsavík gerir bátinn út og sagði Gunnlaugur Karl Hreinsson framkvæmdarstjóri þess á mbl.is að um minniháttar bilun væri að ræða. Talið var að öryggi hafi gefið sig, var því beðið um aðstoð við að koma bátnum til hafnar.
20.6.2007Vörður EA 748. Nýtt skip Gjögurs ehf.Vörður EA 748, nýtt skip sem Gjögur ehf. lét smíða fyrir sig í Póllandi, kom til hafnar í Grindavík í gær. Vörður EA er systur skip Vestmannaeyjar VE 444 sem kom til landsins fyrr á þessu ári. 40 ár eru á þessu ári síðan Vörður ÞH 4 var smíðaður fyrir Gjögur í Noregi en nýi Vörður á að leysa hann og Oddgeir EA 600 af hólmi. Oddgeir, sem var einnig smíðaður fyrir 40 árum, verður þó gerður eitthvað út áfram. Ragnar Pálsson skipverji á Verði EA lánaði mér þessa mynd af skipinu og þakka ég honum hér lánið.
19.6.2007Óli Hall HU 14.Um leið og skipum fjölgar sem stunda úthafsrækjuveiðar verða skipakomur tíðari til Húsavíkur, í dag kom annar rækjubáturinn á á innan við viku. Þeir koma því miður ekki lengur til að landa hér rækju til vinnslu því verksmiðjunni var rústað tilað koma í veg fyrir frekari rækjuvinnslu á Húsavík. En hvað um það í dag kom Óli Hall HU 14 með trollið í henglum og var það tekið upp á bryggju til viðgerðar.
15.6.2007Norskur brunnbátur kom til Húsavíkur.Í gær kom forvitnilegt bátur til Húsvíkur, Froyhav heitir hann og er brunnbátur sér smíðaður til flutninga á seiðumog eða eldisfiski. Erindi hans var að ná í laxaseiði úr Silfurstjörnunni í Öxarfirði. Þau á báturinn að flytja til Finnmerkur í Noregi og er um 110 þúsund seiði að ræða.
14.6.2007Sjaldgæfir hvítir hrafnar...rækjubátarnir.Einhvers staðar segir að hvítir hrafnar séu sjaldséðir og það á einnig um það að rækjubátar komi til Húsavíkur nú orðið. En það gerðist í dag, fékk hringingu frá föður mínum sem er skipstjóri á hvalaskoðunarbát og sagði hann grænan bát vera á siglingu undan Bakkahöfða. Ég taldi eðlilega að það væri Sighvatur GK eða einhver annar Vísisbátanna og var ekkert að stressa mig yfir þessu. En skömmu síðar hringur kallinn aftur og segir bátinn vera minni og sennilega GK 35 og kveikti ég þá á perunni að þarna væri sennilega Guðbjörg Steinunn GK á ferðinni. Ég vissi að báturinn væri komin á rækjuveiðar fyrir norðurlandi. Það reyndist og vera. Skemmtileg tilviljun að ég spurði hér að neðan hversu margir þeir væru bátarnir sem smíðaðir voru í Garðabæ í kringum 1970 og voru kapparnir búnir að nefna þá marga til sögunnar í álitinu við færslunni. En þessi var ekki kominn fram en upphaflega hét hann Þórir GK 251, síðar Þórir SF 77, þá Ólafur Magnússon HF 54 og loks Guðbjörg Steinunn GK 37.
Flettingar í dag: 1226 Gestir í dag: 356 Flettingar í gær: 2019 Gestir í gær: 433 Samtals flettingar: 1572265 Samtals gestir: 402000 Tölur uppfærðar: 21.3.2010 18:43:14 |
Vafraðu umEldra efni
clockhere Tenglar
Um mig Nafn: Hafþór HreiðarssonFarsími: 8956744Tölvupóstfang: korri@simnet.isHeimilisfang: Sólbrekka 29Staðsetning: HúsavíkHeimasími: 4642030Önnur vefsíða: www.640.is |