|
Skipamyndir Hafþórs Hreiðarssonar |
|
FréttasíðaVið sjávarsíðuna 30.5.2007Húsavíkurhöfn á sjöunda áratugnum.Þessi mynd úr safni Hreiðars Olgeirssonar sýnir bátaflota húsvíkinga við bryggju á páskum seint á sjöunda áratugnum (1967-8).
29.5.2007Síðuhallur VE 285.Fékk þessa sendingu frá Þorsteini Péturssyni á Akureyri en hann er m.a. kunnur fyrir áhuga sinn á eikarbátum.
Síðuhallur. Einn elsti bátur landsins.
Síðuhallur VE 285 liggur í fjörunni neðan við Litla Hvamm á Svalbarðsströnd. Síðuhallur er stokkbyrðingur, smíðaður úr eik og furu í Reykjavík árið 1925 upphaflega mældur 14. brl. með 22 ha Alpin vél. Síðuhallur fór fyrst til Vestmannaeyja og var gerður þar úr en árið 1930 fer hann til Eskifjarðar og fékk þá nafnið Hallur SU 508. 1934 var skipt um vél og sett í bátinn 45 ha. Rap vél. 1940 er báturinn aftur endurbyggður og lengdur og mældist þá 22 brl. Seldur 1943 og þá skráður um tíma á Vatnsleysuströnd og fékk nafnið Ársæll Sigurðsson GK 320. 1944 er enn skipt um vél og sett í hann 70 ha. Caterpillar vél. 1944 er báturinn enn seldur og nú skráður á Hegra hf. Sauðárkróki og fékk báturinn þá nafnið Bjarni Jónsson og var það nafn á honum er hann var tekin af skrá 1965. Síðustu árin mun hann hafa verið í umsjón og notkun fyrir Karl Friðriksson á Akureyri. Báturinn var um tíma uppi á landi í Sandgerðisbót en síðan dregin í fjöruna við Dældir eins og heimamenn kölluðu Litla Hvamm. Ætlunin var að báturinn gæti þjónað sem bryggja og skjólgarður. Skrokkur bátsins er ótrúlega heill og Caterpillar vélin er í honum.
Heimildir Skipabókin, Þorsteinn Pétursson Akureyri. 29.5.2007Völsungur-KA 3-1.Íslandsmót 4 flokkur kvenna.Stelpurnar í 4 flokki Völsungs í knattspyrnu hófu leik á Íslandsmótinu í dag er þær tóku á móti KA stúlkum. Völsungsstelpurnar var löngum sterkasti aðillinn í leiknum og lauk honum með sigri þeirra 3-1 og skoraði Heiðdís öll mörk Völsungs.
29.5.2007Hver er báturinn # 19 2007Auðvitað er þetta Njörður ÞH 44 eins og kom strax fram.
28.5.2007Bátur vikunnar er Stapavík SI 5.Bátur vikunnar er skuttogari, Stapavík SI 5 sem var í eigu Þormóðs Ramma hf. Upphaflega hét skipið Dagný SI 70, þ.e.a.s. á íslenskri skipaskrá og var í eigu Togskips hf. á Siglufirði frá árinu 1970. Dagný var 385 brl. og smíðuð í Hollandi 1966. Í bókinni Íslensk skip eftir Jón Björnsson segir að 1980 hafi Dagný verið seld til Hafnarfjarðar. Kaupandinn var Ársæll hf. og fékk skipið nafnið Ársæll Sigurðsson HF 12. Það var selt 1983 Þorleifi Björnssyni í Hafnarfirði sem gaf því nafnið Þorleifur Jónsson HF 12. 1986 var skipið skráð á Siglufirði aftur, bar sama nafn en einkennisstafina SI 80. 1987 var skipinu gefið nafnið Stapavík SI 5 en sami eigandi og áður. Skipið er skráð á Siglufirði 1988.
28.5.2007Hrefnuskurður á Húsavík.Þessi mynd af hrefnuskurði á Húsavík er úr ljósmyndasafni Hreiðars Olgeirssonar.
27.5.2007Húsavíkurhöfn á síldarárunum.Hér ein mynd úr safni Hreiðars Olgeirssonar og sýnir hún Hagbarð ÞH 1 koma að landi á Húsavík.
26.5.2007Þorbjörn GK 540.Hér ein sem ég tók í Grindavík að mig minnir 1985 af Þorbirni GK 540. Þorbjörn GK (914) var smíðaður í Þýskalandi 1959 og eigandi frá 1960 er Hraðfrystihús Þórkötlustaða hf.
23.5.2007Sigurbjörg ÓF 1.Hér er ein gömul úr safni Hreiðars Olgeirssonar sem hann tók á síldarmiðunum í gamla daga er hann var skipverji á Dagfara ÞH 70. Þarna siglir Sigurbjörg ÓF 1 fram hjá Dagfara en Sigurbjörgin var smíðuð í Slippstöðinni á Akureyri 1966 fyrir Magnús Gamalíelsson á Ólafsfirði.
23.5.2007Hver er báturinn # 18 2007Þetta er, eins og kom fljótlega fram, Þorgeir GK 73. Báturinn hét áður Ingólfur GK og er smíðaður í Hollandi 1925. í bókinni Íslensk skip kemur fram að hann er skráður á Íslandi 1946. Þessi mynd er tekin 1967-8 og er báturinn þá í eigu Miðness hf.
Hér er næsta mynd ![]() Hver er báturinn ? (biðst afsökunar á hve myndin er óskýr) ![]() 21.5.2007Valdi Fúsa og Brósi í Kirkjubæ.
Þeir Valdi Fúsa og Brósi í Kirkjubæ taka hér stöðuna í den. 20.5.2007Bátur vikunnar er úr Grímsey.Bátur vikunnar að þessu sinni er dragnóta- og netabátur úr Grímsey. Hann er 57,7 Bt að stærð, Hafborg EA 152 heitir hann og er í eigu samnefnds fyrirtækis á Akureyri. Hafborgin, sem upphaflega hét Stapavík AK 132, var smíðuð á Ísafirði 1998. Guðlaugur Óli Þorláksson skipstjóri og útgerðarmaður keypti hann árið 2005 og af því tilefni birtist eftirfarandi frétt á vef grímseyinga, www.grimsey.is : "Stærri Hafborg EA til eyjarinnar |
Vafraðu umEldra efni
clockhere Tenglar
Um mig Nafn: Hafþór HreiðarssonFarsími: 8956744Tölvupóstfang: korri@simnet.isHeimilisfang: Sólbrekka 29Staðsetning: HúsavíkHeimasími: 4642030Önnur vefsíða: www.640.is |