|
Skipamyndir Hafþórs Hreiðarssonar |
|
FréttasíðaVið sjávarsíðuna 26.8.2006Meðmælaganga á Húsavík..........Í morgun var gengin meðmælaganga í landi Bakka við Húsavík en áhugamenn á Húsavík stóðu fyrir henni þar sem tilgangurinn var að lýsa yfir stuðningi við nýtingu á umhverfisvænni orku og byggingu álvers í Bakka við Húsavík. Á vef stéttarfélaganna í Þingeyjarsýslu www.vh.is skrifaði Aðalsteinn Á. Baldursson formaður að um hundrað manns hafi tekið þátt í meðmælagöngunni. Gengið var um Bakkaland þar sem reiknað er með að álverið rísi innan fárra ára. Fluttar voru stuttar ræður sem tengdust verkefninu og Sigurður Hallmarsson spilaði og stjórnaði fjöldasöng. Meðmælagangan fór mjög vel fram en henni lauk við styttu Einars Benediktssonar í landi Tjörnesinga.
Jón Ásberg Salómonsson slökkviliðsstjóri var sá eini sem veifaði kröfuspjaldi en á því var þó engin krafa heldur stóð á því "Hér byggjum við álver" en lóð fyrirhugaðs álvers er í bakgrunni á myndinni.
Meðmælagangan lögð af stað og pickupinn í Kaldbak fór fyrir henni með harmónikkuleikarann Didda Hall á palli.
Sigurjón skólastjóri sá um að upplýsa meðmælagöngumenn um sögu,örnefni og staðhætti í Bakka. Takið eftir að þarna er fréttamaður frá RUV að störfum ! spurning hvort hann hafi staðið fyrir þessari göngu ? Skyldi Andri Snær vita af þessu ?
Sigurjón og Örlygur Hnefill eru ekki alltaf sammála en í þessu máli ganga þeir saman.
Ekki hafa allir sömu skoðanir og þessir ungu menn biðu göngufólksins við minnismerki Einars Ben og héldu uppi mótmælaspjaldi sem m.a. stóð á "Álver, nei takk". Fleiri myndir verða settar inn í albúm fljótlega. 26.8.2006Sigurvin GK 119 sökk á Breiðafirði.Mannbjörg varð þegar Sigurvin GK 119, 28 brl. eikarbátur, sökk á Breiðafirði í gærkveldi. Þá var báturinn staddur um 15 sjm. norðvestur af Rifi á Snæfellsnesi. Svo segir frá þessu á vef Landsbjargar, www.landsbjorg.is í gærkveldi: Rétt fyrir klukkan níu í kvöld bárust boð frá neyðarsendi 30 tonna eikarbáts sem staddur var NV af Rifi. Björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar, Björg frá Rifi, hélt skömmu síðar á sjó til leitar sem og skemmtibáturinn Svalan. Þyrla landhelgisgæslunnar TF-LÍF fór einnig á staðinn.
1201.Sigurvin GK 119 ex Sigurvin SH 119. Sigurvin GK 119 var smíðaður á Fáskrúðsfirði árið 1972 og hét upphaflega Guðbjörg HU, það held ég að hafi verið vegna þess að báturinn var á innfjarðarveiðum á rækju í Húnaflóa og ef einhver veit eitthvað um það skrifið um það í álitiðð hér að neðan. Síðar var hann lengi gerður út frá Reykjavík, hét enn Guðbjörg og einkennisstafirnir voru RE 21.
1201.Guðbjörg RE 21 ex Guðbjörg HU. Báturinn var seldur til Vestmannaeyja frá Reykjavík þar sem hann bar nöfnin Sigurbára VE og Gæfa VE og síðar er hann í Grindavík sem Gæfa GK, síðar Sigurvin SH og loks Sigurvin GK.
26.8.2006Gamla mynd vikunnarÞá er það gamla mynd vikunnar en þessi þáttur hjá mér hefur legið niðri að undanförnu en nú skal herða róðurinn. Þessi mynd er tekin að mig minnir í Héraðsflóa, sumarið 1995, þegar ég fór afleysingartúr á rækjuskipinu Geira Péturs ÞH 344, þeim sænska. Bátarnir á myndinni eru Kristbjörg ÞH 44 sem er nær og Haförn SK 17.
1009.Kristbjörg ÞH 44 ex Þuríður Halldórsdóttir GK 94 og Haförn SK 17 ex Haförn ÁR 115. Það er eitt sem er sameiginlegt í útgerðarsögu þessara báta og þeir sem vita hvað það er geta skrifað það í álitið hér að neðan. 24.8.2006Bátur vikunnar er smíðaður 1954Bátur vikunnar að þessu sinni er smíðaður úr eik í Svíþjóð árið 1954, nánar tiltekið í Halmstad. Það voru Hornfirðingar sem keyptu hann þaðan og fékk hann nafnið Sigurfari SF 58. Síðar hét hann Farsæll SH 30, Örninn KE 127 og loks Kári GK 146 en það nafn bar hann í tæp 40 ár allt þangað til hann var seldur til Dalvíkur vorið 2005 og fékk hann þá nafnið Aggi Afi EA 399.
399.Aggi Afi EA 399 ex Kári GK 146. 22.8.2006Langanes hf. selt til HornafjarðarÞá er það orðið opinbert að Skinney-Þinganes hf. á Hornafirði hefur keypt útgerðarfélagið Langanes hf. á Húsavík en það hefur gert út skip undir nafninu Björg Jónsdóttir ÞH 321, ásamt fleiri skipum um tíma, í áratugi. Svo segir á www.skarpur.is í dag: Skinney-Þinganes hefur keypt Langanes hf Svo mörg voru þau orð og óhætt að segja að útgerð fiskiskipa frá Húsavík sé á niðurleið.
2618.Björg Jónsdóttir ÞH 321.
1508.Bjarni Sveinsson ÞH 322 ex Björg Jónsdóttir ÞH 321.
14.8.2006Páll Jónsson GK 7Í dag kom línuskipið Páll Jónsson GK 7 til löndunar hjá Vísi hf. á Húsavík en starfsemi er að hefjast hjá Vísi hf. eftir sumarfrí. Páll Jónsson GK 7 hefur gengið í gegnum talsverðar breytingar í sumar auk þess sem mikið var unnið neðan þilja við endurbætur. M.a. er kominn nýr veltitankur aftan við brú og toggálginn fjarlægður.
1030.Páll Jónsson GK 7.
Svona var hann í marz á þessu ári. 12.8.2006Myndir frá Húsavíkurhátíðinni 2006Þá eru allar myndir komnar inn frá Húsavíkurhátíðinni 2006 og eru þær í albúmi sem heitir Húsavíkurhátíðin.
12.8.2006Bátur vikunnar er hálfrar aldar gamall.Bátur vikunnar að þessu sinni er 199 brl. að stærð, smíðaður í Haugasundi 1956, og er því hálfrar aldar gamall um þessar mundir. Hann er í dag gerður út frá Hornafirði og er í eigu Skinneyjar-Þinganess hf. Þetta er að sjálfsögðu Þórir SF 77 sem upphaflega hét Vaco en þegar hann var keyptur til landsins 1958 fékk hann nafnið Haförn og einkennisstafina GK 321. Eigandi Jón Kr. Gunnarsson Hafnarfirði. Hann seldi Ingimundi hf. í Reykjavík bátinn árið 1961 og fékk hann þá nafnið Helga RE 49 sem hann bar allt til fram til þess að Þinganes hf. á Hornafirði keypti hann árið 1996.
91.Þórir SF 77. 5.8.2006Sigur Rós í ÁsbyrgiBrá mér í Ásbyrgi í gær á tónleikana með Sigur Rós og var þetta mögnuð upplifun, ágætis tónlist í stórkostlegu umhverfi.
3.8.2006Símamynd af Leu Hrund
Fórum í ostakarið áðan og ég prófaði að senda mynd, sem ég tók af Leu Hrund á GSM símann minn,inn á bloggið . Það virkaði. 3.8.2006Skip vikunnar er smíðað í PóllandiSkip vikunnar er togari, smíðaður í Póllandi árið 1974 fyrir Ísfell hf. í Reykjavík og hét þá Engeyr RE. Í dag heitir togarinn Kleifaberg ÓF 2 og er í eigu Þormóðas-Ramma hf. í Fjallabyggð.
1360.Kleifaberg ÓF 2 Björn Valur Gíslason er stýrimaður og og afleysingaskipstjóri á Kleifaberginu og á heimasíðu sinni www.bvg.is segir hann m.a. sögu skipsins á sem sjá má hér http://www.simnet.is/kleifaberg/skipid/saga_klb.htm
3.8.2006Bergur Elías Ágústsson ráðinn sveitarstjóri Norðurþings..........
Bergur Elías Ágústsson, Mynd www.eyjar.net Og það fór eins og www.skarpur.is sagði frá áðan, að Bergur Elías Ágústsson yrði ráðinn sveitarstjóri Norðurþings. www.skarpur.is : www.skarpur.is greinir frá því rétt í þessu að nú sé fundað um ráðningu sveitarstjóra Norðurþings : Nú stendur yfir fundur í byggðaráði Norðurþings. Fundurinn hófst kl. 16 og sagði Jón Helgi Björnsson bæjarfulltrúi að stefnt væri að því á fundinum að ganga frá ráðningu sveitarstjóra Norðurþings. Samkvæmt heimildum Skarps er sá Bergur Elías Ágústsson. Bergur Elías er fyrrverandi bæjarstjóri í Vestmannaeyjum og starfaði sem slíkur á sínum tíma í umboði meirihluta V-listans (kosningabandalags Vinstri-Grænna, Samfylkingarinnar og framsóknarmanna). Bergur Elías er sjávarútvegsfræðingur að mennt frá Tromsö, og stundaði meðal annars rannsóknarstörf hjá hagfræðideild norsku sjávarútvegsstofnunarinnar um sex ára skeið. Eftir að hann kom frá Noregi starfaði hann við sjávarútveg þar til hann tók við bæjarstjórastarfinu í Vestmannaeyjum.
Flettingar í dag: 1610 Gestir í dag: 349 Flettingar í gær: 1862 Gestir í gær: 463 Samtals flettingar: 1570630 Samtals gestir: 401560 Tölur uppfærðar: 20.3.2010 20:46:12 |
Vafraðu umEldra efni
clockhere Tenglar
Um mig Nafn: Hafþór HreiðarssonFarsími: 8956744Tölvupóstfang: korri@simnet.isHeimilisfang: Sólbrekka 29Staðsetning: HúsavíkHeimasími: 4642030Önnur vefsíða: www.640.is |