|
Skipamyndir Hafþórs Hreiðarssonar |
||||
FréttasíðaVið sjávarsíðuna 27.6.2006Ný Cleopatra 38,Auður Vésteins GK 88, til Grindavíkur
25.6.2006Sjöfn EA 142 seld.Sjöfn EA 142 hefur verið seld útgerð Saxhamars SH á Rifi en Frosti hf. á Grenivík sem gerir út samnefndan frystitogara keypti þær veiðiheimildir sem á bátnum voru. Sjöfnin er nú í slipp á Akureyri en verður afhent nýjum eigendum innan skamms.
1028.Sjöfn EA 142 ex Sæljón SU 104. Sjöfnin hét upphaflega Hrafn Sveinbjarnarson GK 255 og var einn þeirra báta sem smíðaðir voru fyrir íslendinga í Boizenburg í Austur Þýskalandi 1964-1967. Síðar hét hann Sæljón SU 104 frá Eskifirði þangað til hann kom til Grenivíkur og fékk nafnið Sjöfn. 24.6.2006Steffen C GR 6-22 Nuuk ex Pétur Jónsson RE 69Þá er búið að afhenda nýjum eigendum rækjufrystitogarann Pétur Jónsson RE 69. . Eins og fram hefur komið í fréttum var togarinn seldur til Grænlands og hefur nú hann fengið nafnið Steffen C. Ég tók þessa mynd inn a Akureyri í dag.
Steffen C GR 6-22 ex Pétur Jónsson RE 69.
22.6.2006Fanney aftur komin í húsvíska flotannFanney aftur komin í húsvíska flotann.
2177.Fanney ÞH 16. Fanney er bátsnafns sem velþekkt er úr útgerðarsögu Húsavíkur en hefur þó ekki verið á bát frá Húsavík síðan Fanney ÞH 130 var seld til Ólafsvíkur. Nú er Fanneyjarnafnið aftur komið í notkun og er það Sigurjón Sigurbjörnsson, sonur Sigurbjörns Kristjánssonar sem var einn af eigendum Fanneyjar ÞH 130, sem lét bát sem hann keypti í vetur heita þessu nafni. Báturinn sem er af Gáskagerð hét áður Sunna ÍS og var gerður út frá Suðureyri við Súgandafjörð. 18.6.2006Gamla mynd vikurnnar er úr saltfiskverkun.Gamla mynd þessarar vikur er úr saltfiskverkun Korra hf. á Húsavík og er myndin tekin að öllum líkindum árið 1989.
Steini á Fossi (Steingrímur Árnason) og Baldvin Jónsson við störf í saltfiskinum. Bæti annari við og sýnir hún Hall Jóhannesson við saltfiskmat.
Úgerðarfyrirtækið Korri hf. byggði saltfiskverkunarhús á hafnarsvæðinu á Húsavík og verkaði þar fisk um tíma, eftir að fyrirtækið var selt var GPG fiskverkun stofnuð og er hún til húsa í þessu húsnæði auk þess sem byggt hefur verið við það. 17.6.2006Hver er báturinn er...Leiftur frá liðinni tíð.Myndagetraunin hver er báturinn er komin í sumarfrí en kemur aftur galvösk að því loknu. Nýr liður kemur í hennar stað sem nefnist Leiftur frá liðinni tíð og verður þar á ferðinni mynd eða myndir frá einhverrjum atburði sem sumum þykir athyglisverður en öðrum ekki. Enn verður þetta þó tengt skipum og bátum og rétt að benda á að þetta sem þú ert að lesa núna er liðin tíð um leið og þú ert búinn að lesa þetta. Því er verða bæði eldgamlar myndir og mjög nýlegar í þessu.. 14.6.2006Áhöfnin á Þinganesinu fær viðurkenninguÁhöfnin á Þinganesinu fær viðurkenningu Á sjómannadag veitti Slysavarnafélagið Landsbjörg hina árlegu viðurkenningu til áhafna skipa sem sótt hafa námskeið hjá Slysavarnaskóla sjómanna og sýnt öðrum fremur góða öryggisvitund að mati kennara skólans. Viðurkenningin er farandbikar sem afhentur er til varðveislu um borð í viðkomandi skipi í eitt ár ásamt veggskildi til eignar. Áhöfnin á Þinganesi SF 25 frá Hornafirði hlaut viðurkenningu ársins 2006. Gunnar Þorgeirsson stjórnarmaður hjá Slysavarnafélaginu Landsbjörgu afhenti viðurkenninguna og veitti Jón Sigurðsson skipstjóri henni móttöku fyrir hönd áhafnar sinnar. Athöfnin fór fram í Slysavarnaskóla sjómanna um borð í Sæbjörgu skólaskipi Slysavarnafélagsins Landsbjargar.
Þessi frétt er af heimasíðu Skinneyjar-Þinganess www.sth.is
2040.Þinganes SF 25 13.6.2006Nýtt albúm frá sjómannadeginum á HúsavíkHef sett inn nýtt albúm með myndum frá sjómannadeginum á Húsavík 2006.
Spurning dagsins er hversu lengi var Gunnþór á ránni, eftir að mátti byrja að slá ? 13.6.2006Hver báturinnÞ.A. var greinilega á réttri leið því Dísa kemur með sama bátinn, reyndar undir öðru nafni en hann heitir á þessari mynd. Báturinn er smíðaður 1963 í Danmörku fyrir Halakotsbræður og nefndist báturinn Ágúst Guðmundsson II GK 94. Hann heitir Jóhannes Ívar á myndinni en hafði heitið m.a. Sigurjón GK, Ver NS og Jónína ÍS.
963.Jóhannes Ívar KE ex Jónína ÍS. Er Þ.A á réttri leið ?
Enn set ég hér myndbrot inn og spyr hver er báturinn ?
11.6.2006Amma í Skálabrekku heiðruð á sjómannadaginnSjómnnadagsráð á Húsavík í ár var í fyrsta skipti eingöngu skipað sjómannskonum og þótti þeim því tilvalið að heiðra að þessu sinni sjómannskonur. Heiðraðar voru tvær konur, Bergljót Sigurðardóttir sem er eiginkona Sigtryggs Kristjánssonar ,sem var einn eigenda Fanneyr ÞH 130, og amma mín, Ragnheiður Jónasdóttir, ekkja Olgeirs Sigurgeirssonar útgerðarmanns. Það var Ósk Þorkelsdóttir sem sá um orðuveitingarnar sem fram fóru í kaffifagnaði slysavarnardeildar kvenna í sal Fosshótels Húsavíkur.
Fv. Bergljót Sigurðardóttir, Ragnheiður Jónasdóttir og Ósk Þorkelsdóttir.
9.6.2006Gamla mynd vikunnar er í tilefni sjómannadagsins....Gamla mynd þessarar viku er tekin af Hreiðari Olgeirssyni 1974-75 eða þar um bil. Hún er tekin á sjómannadaginn og sýnir Jón Sör ÞH 220 leggja að bryggju eftir skemmtisiglinuna. Eins og sagt var í upphafi átti gamala mynd vikunar að tengjast Korraútgerðinni á einhvern hátt. Þessi gerir það á þann hátt að Pétur Olgeirsson var skipstjóri og einn eigenda Jóns Sör en Pétur er sonur Olgeirs Sigurgeirssonar sem stofnaði til Korraútgerðarinnar ásamt sonum sínum (útgerðin var stofnuð 1961 en fékk ekki nafnið Korri fyrr en árið 1969 er keypt var samnefnt hlutafélag úr Ólafsvík).
625.Jón Sör ÞH 220 ex Þórður Bergsveinsson SH 3. Upphaflega Jökull SH 15.
9.6.2006Hver er báturinn 27 maíKeilir GK 145 er báturinn, smíðaður 1975 í Skipavík og hét Kristbjörg ÞH 44 í eigu Korra hf. á Húsavík.
Er menn einhverju nær ?
Hvar er Hafliði ?
Hver er báturinn ?
8.6.2006Völsungur Magni 3-1Í kvöld áttust við í 1. deild kvenna b riðli Völsungur og Magni frá Grenivík og fór leikurinn fram í blíðskaparveðri á Húsavíkurvelli. Aðsókn að leiknum var góð enda var þetta fyrsti heimaleikur Völsungskvenna siðan 1993 í meistaraflokki enda ekki sent lið síðan þá fyrr en í vor. Völsungur hafði fyrir leikinn í kvöld unnið tvo fyrstu leiki sumarsins á útivelli. Svo segir www.skarpur.is í kvöld : Sigurganga Völsungsstúlkna heldur áfram!
Hafrún Olgeirsdóttir skoraði fyrsta markið.
Harpa Ásgeirsdóttir er hér að skora þriðja markið.
Dagný Linda Kristjánsdóttir markvörður Magna ,sem er kunnari fyrir afrek sín á skíðum, fylgist með Völsungum fagna marki.
Veðrið var alveg frábært í kvöld. Flettingar í dag: 535 Gestir í dag: 49 Flettingar í gær: 1665 Gestir í gær: 467 Samtals flettingar: 1567693 Samtals gestir: 400797 Tölur uppfærðar: 19.3.2010 06:19:08 |
Vafraðu umEldra efni
clockhere Tenglar
Um mig Nafn: Hafþór HreiðarssonFarsími: 8956744Tölvupóstfang: korri@simnet.isHeimilisfang: Sólbrekka 29Staðsetning: HúsavíkHeimasími: 4642030Önnur vefsíða: www.640.is |
|||