|
Skipamyndir Hafþórs Hreiðarssonar |
||||||
FréttasíðaVið sjávarsíðuna 29.11.2005Skerpla með betri skipamyndirÞá er fyrstu skoðanakönnuninni lokið, spurt var "Í hvoru Sjómannalmanakinu eru betri skipamyndir" og var þar átt við Skerplu Skemmst er frá því að segja að 88,89 % þeirra sem svöruðu þóttu Skerplumyndirnar betri, það segir okkur að 11,11 % fannst Athyglismyndirnar betri. Það virðist eitthvað lítið vera að frétta úr sjávarútvegnum hér á landi í dag og t.a.m voru sjö af átta fréttum (fyrir utan það sem tekið var upp úr síðasta tölublaði Fiskifrétta) á skip.is í dag erlendis frá. Íslenska fréttin var sú að Björn Friðrik Brynjólfsson hefði verið ráðinn aðstoðarmaður sjávarútvegsráðherra. Gott að fá þingeying í djobbið. Samt var ýmislegt að frétta t.d. fengu Huginn og Björg Jónsdóttir loðnu og mogginn sýndi okkur mynd ad nýja Aron ÞH. Þannig er nú það og ný skoðanakönnun birtist innan skamms. 26.11.2005Ekki bara bátamyndir-Grýla og Leppalúði líka"Ekki bara bátamyndir" hef ég fengið að heyra að undanförnu eftir að þessi heimasíða mín fór að verða lýðnum ljós og hefur fólk hvatt mig til að setja annars konar myndir inn. Þar sem ég hef séð að nóg mun vera plássið þá mun ég verða við þessum áskorunum og fyrsta albúmið fyrir utan báta- og skipamyndaalbúmin lítur nú dagsins ljós. Í því verða myndir sem ég tók í dag þegar ljósin á jólatré okkar húsvíkinga voru tendruð og mörkuðu upphaf aðventu í hugum margra.
Grýla og Leppalúði sóttu húsvíkinga heim í dag. 21.11.2005Nýr bátur til Stykkishólms
18.11.2005Nýr Hringur GK 18Útgerðarfélagið Einar í Bjarnabæ ehf. í Hafnarfirði festi fyrir skömmu kaup á krókaaflamarksbátnum Hermóði ÍS 20 sem er af Cleopötrugerð, var 28 en er nú 28s hvað sem það nú þýðir. Aðalsteinn Einarsson skipstjóri, þekktastur sem Alli á Hringnum, hefur hafði róðra á nýja bátnum með syni sínum Einari. Að sjálfsögðu heitir nýji báturinn Hringur og einkennisstafirnir sem fyrr GK 18. Þegar ég var á ferðinni í Hafnarfirði í byrjun mánaðarins voru þeir feðgar að koma úr róðri og var aflinn um 3 tonn á 16 bala.
Aðalsteinn Einarsson 17.11.2005Skonnortan Haukur siglir á Skjálfanda
Þessi frétt birtist á www.mbl.is í dag með myndinni hér að ofan Skonnortan Haukur hefur verið við siglingar á Skjálfanda síðustu daga og hefur það verið tignarlegt að sjá Haukinn undir seglum með snævi þakin Kinnarfjöllin í baksýn. Veðrið hefur bæði verið gott og slæmt þessa daga og því reynt bæði á bát og búnað. Á heimasíðu Norður-Siglingar kemur fram að sænskur siglingakappi að nafni Leif Nilson hafi verið í heimsókn í þeim tilgangi að þjálfa starfsfólk Norður-Siglingar í siglingum sem og fínstilla reiðann á skonnortunni. Leif er einn af nokkrum skipstjórum á skonnortunni Atene (www.msatene.com) en hún er 90 tonna glæsilegt skip. Hörður Sigurbjarnarson framkvæmdarstjóri Norður-Siglingar segir að þau hjá Norður-Siglingu séu hæst ánægð með þessa heimsókn og hafi fengið staðfestingu reynds manns á því, að skonnortan Haukur er hið besta skip og reiðinn eins og best gerðist á skútuöld.
Þessi mynd er tekin á mánudaginn og þá blés hann hressilega á flóanum. 15.11.2005Brim áætlar auknar línuveiðar.Sá á heimasíðu Brims hf. www.brimhf.is að KG-fiskverkun á Rifi, Brim hf. og Útgerðarfélagið Tjaldur hafa ákveðið að láta smíða fjögur ný línuveiðiskip og er að því stefnt að fyrstu skipin verði tekin í notkun á fyrri hluta árs 2007. Á heimasíðunni segir jafnframt "Nú gera þessi félög út fimm togskip og tvö línuveiðiskip, en með komu nýju línuveiðiskipanna mun hlutur línuveiða í rekstrinum aukast, en að sama skapi dregur úr vægi togveiðanna. Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims, segir að með því að ráðast í smíði nýrra línuveiðiskipa séu þessi félög að taka þá stefnumarkandi ákvörðun að fara í auknum mæli í línuveiðar. Tvennt komi þar aðallega til. Í fyrsta lagi sé með þessu undirstrikað að félögin vilji leggja enn meiri áherslu en áður á gæði hráefnisins og ferskleika vöru og í öðru lagi sé útgerð línuveiðiskipa hagkvæmt rekstrarform". Línuskipin sem þessi fyrirtæki eiga eru Tjaldur SH 270 og Faxaborg SH 207.
1023.Faxaborg SH 207 er í eigu KG fiskverkunar á Rifi og hét áður Skarfur GK 666. Faxaborgin er einn þessara gömlu síldarbáta sem smíðaðir voru fyrir íslendingaí Boizenburg í A-Þýskalandi og hét hann upphaflega Sléttanes ÍS. Þessir bátar hafa margir gengið í gegnum ýmsar breytingar og í dag er Faxaborgin línubátur útbúinn með beitningarvél um borð. 14.11.2005Ásdís SH í stað Hildar ÞHSá í Morgunblaðinu í dag að Magnús Sigurðsson útgerðarmaður á Raufarhöfn keypti í haust vélbátinn Ásdísi SH 300 í stað Hildar ÞH 38 sem sökk á Þistilfirði fyrr á þessu ári.
1149.Ásdís SH 300
1311.Hildur ÞH 38 ex Skálafell ÁR 205 13.11.2005Fjölskyldumyndir
Á þessari mynd eru dætur mínar þrjár ásamt skiptinema sem dvaldi hjá okkur um skeið, hún heitir Roselien Beerten og á heima í Belgíu. Dætur mínar, þessar ljóshærðu, heita Lea Hrund f. 2002, Heiðdís f. 1994 og Halla Marín f. 1988. 12.11.2005Ef þeir væru á palliÞessa mynd hér að neðan tók Kristján Kristjánsson blaðamaður Morgunblaðsins á Akureyri í haust. Hún sýnir þrjá afkastamikla skipaljósmyndara og datt mér í hug hvort það hafi verið tilviljun að þeir röðuðust svona upp, þ..e.a.s eins og á verðlaunapalli, gullið í miðju, silfrið til hægri og bronsið til vinstri.
Hvað skyldi Alfons Finnsson segja um þetta ? 11.11.2005Leifur EA seldur
Það er frekar lítið um að vera í skipamyndunum þessa dagana nema þá við að koma þeim inn á þessa síðu. Sá á vef Viðskiptahússins í dag að netabáturinn Leifur EA hefur verið seldur kvótalaus til Grindavíkur. Kaupandinn er Gunnar Ari Harðarson. Leifur hét áður Hringur GK 18 í nokkra mánuði en þar áður Þorleifur EA 88 úr Grímsey.
En upphaflega hét báturinn, sem smíðaður er á Seyðisfirði 1988, Völusteinn NS 116 og tók ég þessa mynd hér að neðan á Seyðisfirði 1989.
9.11.2005Líf og fjör á bryggjunni
Frændi að landa í dag Það er oft líf og fjör á bryggjunni á Húsavík þegar bátarnir koma að landi og þannig var það í dag enda margir á sjó. Frændur mínir þeir Hermann Arnar og Kristján Friðrik Sigurðssynir voru að landa þegar ég skrapp í fjöruna en þeirra bátur heitir Auður Þórunn ÞH 344. Hermann, eða frændi eins og hann er jafnan kallaður, tjáði mér að þeir hefðu lagt línuna í Öxarfirði. Aflinn var um 3 tonn af þorski og ýsu hjá þeim bræðrum.HH
2485.Auður Þórunn ÞH 344 8.11.2005Ný Sóla í Hafnarfjörðinn
Ég var á ferðinni í Hafnarfirði fyrir helgina og tók þá þessa mynd af Sólu HF 57 koma úr róðri en Sóla er nýr bátur frá Trefjum og segir eftirfarandi á heimasíðu Trefja þann 27.10 sl. :
7.11.2005Karólína ÞH 111, nýr glæsilegur línubátur
Nýr og glæsilegur línubátur til Húsavíkur. Fimmtudaginn 3 nóvember sl. kom nýr og glæsilegur bátur til heimahafnar á Húsavík. Hann heitir Karólína ÞH 111 og skrifaði ég eftirfarandi frétt sem birtist í Morgunblaðinu þann 4 nóvember sl. : Nýr línubátur til HúsavíkurNýr og glæsilegur línubátur bættist í flota Húsvíkinga nú í vikunni er Karólína ÞH 111 kom til heimahafnar í fyrsta sinn. Karólína ÞH 111 er af gerðinni Cleópatra 38, smíðuð hjá bátasmiðjunni Trefjum í Hafnarfirði. Nýr og glæsilegur línubátur bættist í flota Húsvíkinga nú í vikunni er Karólína ÞH 111 kom til heimahafnar í fyrsta sinn. Karólína ÞH 111 er af gerðinni Cleópatra 38, smíðuð hjá bátasmiðjunni Trefjum í Hafnarfirði. Báturinn er yfirbyggður og með línubeitningakerfi frá Mustad fyrir 15000 króka um borð auk línu- og færaspila frá Beiti. Báturinn er 15 brúttótonn að stærð og rúmar lest hans 12 660 lítra kör. Borðsalur er í brúnni auk stóla fyrir skipstjóra og háseta en svefnpláss er fyrir fjóra í lúkar auk eldunaraðstöðu með eldavél, örbylgjuofni og ísskáp. Þá er í bátnum innangeng upphituð stakkageymsla. Eigandi bátsins er Útgerðarfélagið Dodda ehf. en að því standa Haukur Eiðsson skipstjóri, Örn Arngrímsson og Jóhann Gunnar Sigurðsson, sem eru í áhöfn bátsins, ásamt Gunnlaugi Karli Hreinssyni, eiganda GPG fiskverkunar á Húsavík. Þeir félagar keyptu einnig á haustdögum útgerðarfélagið Kristínu ehf. á Suðureyri og segir Gunnlaugur Karl að með þeim kvóta sem því fylgdi sé kvóti Karólínu ÞH um 700 þorskígildistonn í krókaaflamarkskerfinu. Þeir Haukur og Gunnlaugur eru frændur og er báturinn nefndur eftir ömmu þeirra, Karólínu Friðbjarnardóttur. Auk þess eiga þeir báðir dætur sem bera þetta nafn. Aðalvél bátsins er af gerðinni Yanmar 6HYM-ETE, 700 hestöfl tengd ZF gír. Þá er báturinn einnig útbúinn með vökvadrifinni hliðarskrúfu sem tengd er sjálfstýringu hans. Í brúnni eru siglingatæki af gerðinni Furuno frá Brimrúnu og öryggisbúnaður hans kemur frá Ísfelli og Viking. Þá mun Karólína vera fyrsti báturinn af þessu tagi, þ.e.a.s. yfirbyggður smábátur með línubeitingarvél, sem gerður er út frá Húsavík og Norðurlandi ef menn telja ekki aðkomubáta með.
Flettingar í dag: 549 Gestir í dag: 57 Flettingar í gær: 1665 Gestir í gær: 467 Samtals flettingar: 1567707 Samtals gestir: 400805 Tölur uppfærðar: 19.3.2010 06:41:00 |
Vafraðu umEldra efni
clockhere Tenglar
Um mig Nafn: Hafþór HreiðarssonFarsími: 8956744Tölvupóstfang: korri@simnet.isHeimilisfang: Sólbrekka 29Staðsetning: HúsavíkHeimasími: 4642030Önnur vefsíða: www.640.is |
|||||